Key Car Rental
Key Car Rental
Key Car Rental

Gjaldkeri og Innheimtuaðili: 50-100% Starfshlutfall

Starf gjaldkera og innheimtuaðila hjá Key Car Rental er fjölbreytt og krefjandi hlutverk fyrir einstakling sem hefur metnað til að hafa áhrif á fjármálastýringu og vöxt fyrirtækisins. Starfið er 50% en möguleiki á auknu starfshlutfalli fyrir réttan aðila. Þú verður í lykilstöðu þegar kemur að daglegri fjármálavinnslu, samskiptum við bæði innlenda og erlenda viðskiptavini og þróun innheimtu- og reikningsferla.Þetta er tækifæri fyrir sjálfstæðan og lausnamiðaðan einstakling sem vill vinna í alþjóðlegu umhverfi þar sem hraði, sveigjanleiki og nýsköpun eru í fyrirrúmi. Þú vinnur náið með framkvæmdastjóra, aðalbókara og fjármálastjóra að því að tryggja skilvirka fjármálastjórn og vandaða þjónustu við viðskiptavini.Við leggjum áherslu á jákvætt og opið starfsumhverfi þar sem hugmyndir og umbætur eru hvattar áfram. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæði í vinnubrögðum og sveigjanleika – bæði hvað varðar vinnutíma og staðsetningu. Starfið hentar vel þeim sem vilja taka ábyrgð, hafa áhrif á vinnulag og vöxt fyrirtækisins og þróa sig áfram í fjármálum og innheimtu.Við hjá Key Car Rental erum metnaðarfullur hópur sem vinnur saman að því að veita framúrskarandi þjónustu fyrir erlenda ferðamenn á Íslandi. Við erum opin fyrir nýjum hugmyndum og leggjum áherslu á að starfsfólkið okkar fái að vaxa og blómstra í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Útgáfa reikninga fyrir rekstrarfélag Key Car Rental
  • Innheimta og eftirfylgni með ógreiddum reikningum
  • Samskipti við viðskiptavini vegna innheimtu
  • Undirbúningur og framkvæmd færslu reikninga úr bókunarkerfi yfir í bókhaldskerfi
  • Utanumhald yfir reikninga vegna útgjalda
  • Skýrslugerð og áætlunargerð (t.d. í PowerBi)
  • Undirbúningur fjárhagsuppgjöra í samstarfi við fjármálastjóra
  • Þátttaka í umbótum á ferlum og verklagi
  • Náin samvinna við framkvæmdastjóra, aðalbókara og fjármálastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði fjármála, reikningshalds eða skyldum greinum (framhaldsmenntun kostur)
  • Reynsla af uppgjörsvinnu og innheimtu er skilyrði
  • Þekking á DK bókhaldskerfi er skilyrði
  • Kostur ef viðkomandi hefur reynslu úr bílaleigubransanum og/eða kerfum Caren
  • Hæfni í greiningu fjárhagsupplýsinga og framsetningu gagna
  • Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Ríkir samskiptahæfileikar, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
  • Mjög góð tölvufærni, reynsla í skýrslugerð í PowerBi er mikill kostur
  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
  • Bílpróf er skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Langtímaleiga bifreiða á sérkjörum
  • Fartölva og sími
  • Sveigjanleiki í starfshlutfalli (50–100%)
  • 100% fjarvinna í boði
Advertisement published6. January 2026
Application deadline21. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DeterminationPathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.DKPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.TellerPathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.Neatness
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags