Ljósleiðarinn
Ljósleiðarinn
Ljósleiðarinn

Gagnasérfræðingur - Gögn og gervigreind

Viltu breyta gögnum í forskot framtíðarinnar?

Ljósleiðarinn býr yfir verðmætum gögnum um tengingar, notkun, rekstur og uppbyggingu ljósleiðaranetsins um allt land. Markviss nýting þessara gagna eykur skilvirkni, eflir þjónustu og styður við gagnadrifna ákvarðanatöku.

Við leitum að reyndum gagnasérfræðingi með góða þekkingu á gervigreind sem vill byggja upp trausta gagnainnviði og skapa úr þeim verðmæti. Þú munt vinna með gögn frá grunni, tryggja gæði þeirra og aðgengi og þróa leiðir til að nýta þau betur í starfsemi fyrirtækisins, meðal annars með gervigreind og sjálfvirknivæðingu.

Þetta er tækifæri fyrir gagnasérfræðing sem vill sameina tæknilega þekkingu, greiningarhæfni og nýsköpun. Þú verður hluti af teymi Viðskiptaþróunar og hefur raunveruleg áhrif á hvernig Ljósleiðarinn nýtir gögn og nýja tækni til að þróa reksturinn og þjónustu við viðskiptavini.

Helstu verkefni

  • Byggja upp og viðhalda gagnainnviðum, tryggja gæði gagna og gera þau aðgengileg til greininga og ákvarðanatöku.

  • Þróa greiningar- og spálíkön sem styðja við rekstur og uppbyggingu Ljósleiðarans.

  • Greina tækifæri og þróa hagnýtar gervigreindarlausnir, meðal annars með notkun mállíkana (LLM).

  • Leiða þróun lausna frá hugmynd til innleiðingar og meta árangur þeirra.

  • Starfa þvert á fyrirtækið að því að nýta gögn til að bæta þjónustu og auka skilvirkni.

  • Stuðla að öruggri og ábyrgri notkun gagna og gervigreindar.

Hæfniskröfur

  • Minnst 5 ára reynsla af gagnavinnslu, gagnagreiningu eða líkanagerð.

  • Mjög góð færni í Python og SQL.

  • Reynsla af þróun og innleiðingu gervigreindarlausna í rekstri, til dæmis með vélnámi eða mállíkönum (LLM).

  • Reynsla af því að leiða verkefni sjálfstætt frá hugmynd til innleiðingar.

  • Rík greiningarhæfni, frumkvæði og hæfni til að tengja tæknilegar lausnir við þarfir starfseminnar.

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.

  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði, stærðfræði, tölfræði, gagnavísindum eða skyldum greinum.

Það er kostur ef þú hefur

  • Reynslu af Azure OpenAI, Azure AI Foundry, Microsoft Fabric eða Power BI.

  • Reynslu af RAG-lausnum, gervigreindarþjónum (AI agents), API-samþættingum eða MLOps.

  • Þekkingu á gagnaöryggi, persónuvernd og regluverki um gervigreind.

Advertisement published13. November 2026
Application deadline29. November 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.Artificial intelligencePathCreated with Sketch.PythonPathCreated with Sketch.SQL
Work environment
Professions
Job Tags