
Ljósleiðarinn
Ljósleiðarinn byggir upp og rekur ljósleiðaranet fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Með þéttu neti ljósleiðaraþráða tryggir Ljósleiðarinn hraðan, öruggan og hnökralausan aðgang að tækifærum framtíðarinnar. Þannig gerum við allt mögulegt mögulegt. Hjá okkur færðu tækifæri til að takast á við krefjandi og spennandi verkefni í ört vaxandi umhverfi ásamt því að vaxa og þróast innan fyrirtækisins.

Viðskiptastjóri
Viltu hafa áhrif á vöxt Ljósleiðarans?
Ljósleiðarinn rekur ljósleiðarainnviði um allt land sem fjarskiptafélög, fyrirtæki og stofnanir treysta á. Eftirspurn eftir öruggum og öflugum tengingum vex hratt, ekki síst hjá gagnaverum og öðrum innviðafyrirtækjum.
Við leitum að reyndum viðskiptastjóra sem vill ná árangri og eiga þátt í áframhaldandi vexti Ljósleiðarans. Þú sækir ný viðskipti, byggir upp traust viðskiptasambönd og mótar lausnir með okkur á spennandi markaði.
Þú verður hluti af teymi Sölu og viðskiptaþróunar og hefur raunveruleg áhrif á árangur Ljósleiðarans á ört vaxandi markaði.
Helstu verkefni
- Sækja ný viðskipti á innviðamarkaði, meðal annars hjá gagnaverum, orkufyrirtækjum og stærri fyrirtækjum með sérþarfir í tengingum.
- Viðhalda og efla langtímasambönd við viðskiptavini.
- Greina þarfir viðskiptavina og markaðarins og taka þátt í þróun lausna í samstarfi þvert á fyrirtækið.
- Tilboðsgerð, samningaviðræður og eftirfylgni.
Hæfniskröfur
- Að minnsta kosti fimm ára reynsla af sölu eða viðskiptastýringu á fyrirtækjamarkaði.
- Reynsla af tilboðs- og samningagerð.
- Góður tæknilegur skilningur og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu.
- Frumkvæði, sjálfstæði og drifkraftur.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og gott vald á íslensku og ensku.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Það er kostur ef þú hefur
- Reynslu úr fjarskipta-, gagnavera- eða orkugeiranum.
- Þekkingu á ljósleiðaratækni eða netinnviðum.
- Gott tengslanet á fyrirtækja- og/eða innviðamarkaði.
- Reynslu af útboðum og tilboðsgerð.
Advertisement published13. November 2026
Application deadline29. November 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
ContractsBusiness relations
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (1)





