Eimskip
Eimskip
Eimskip

Fulltrúi í þjónustudeild Eimskips

Eimskip leitar að öflugum fulltrúa til framtíðarstarfa í þjónustudeild félagsins. Viðkomandi verður hluti af samhentu teymi sem leggur áherslu á gott samstarf, fagleg vinnubrögð og framúrskarandi þjónustu.

Starfið er fjölbreytt og veitir góða innsýn í alþjóðlega flutningsstarfsemi. Við leitum að jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingi sem sýnir frumkvæði, vinnur vel með öðrum og kann að meta líflegt vinnuumhverfi.

Í anda mannauðsstefnu Eimskips eru öll kyn hvött til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina vegna útflutnings
  • Samskipti við erlendar skrifstofur
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking og/eða reynsla af verkefnum tengdum flutningum eða sjávarútvegi er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Öflugt starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðs vegar um landið
  • Heilsu- og hamingjupakka fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. heilsuræktarstyrk, sálfræðiþjónustustyrk, samgöngustyrk og fleira
  • Gott mötuneyti með fjölbreyttu úrvali
Advertisement published7. September 2026
Application deadline15. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags