Eimskip
Eimskip
Eimskip

Meiraprófsbílstjóri á Patreksfirði

Eimskip innanlands leitar að ábyrgum og þjónustulunduðum meiraprófsbílstjóra til starfa í áætlunarakstri á milli Reykjavíkur og Patreksfjarðar. Um er að ræða fjölbreytt starf í fallegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á öryggi, stundvísi og góða þjónustu.

Starfið felur í sér akstur flutningabíla, lestun og losun, sem og samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk. Viðkomandi þarf að vera stundvís, skipulagður í vinnubrögðum og búa yfir framúrskarandi þjónustulund. Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni í fyrsta flokks vinnuaðstöðu þar sem fagmennska og öryggi eru í forgrunni.

Starfið tilheyrir Innanlandssviði Eimskips, en á sviðinu starfa um 400 starfsmenn í fjölbreyttum störfum á 18 starfsstöðvum víðs vegar um landið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Akstur flutningabíla
  • Lestun og losun
  • Samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meirapróf CE er skilyrði
  • Lyftararéttindi eru kostur
  • ADR réttindi eru kostur
  • Góð íslensku og/eða ensku kunnátta
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Framúrskarandi þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sjálfstæð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
  • Aðgangur að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur frábær orlofshús um allt land
  • Heilsu- og hamingjupakki sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira
  • Fjölbreytt verkefni og góðan starfsanda í litlu og samheldnu teymi.
  • Nýr og vel útbúin flutningabíll
Advertisement published1. September 2026
Application deadline15. September 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Hafnarsvæði, 450 Patreksfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's license CEPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags