Pósturinn
Pósturinn
Pósturinn

Þjónustufulltrúar á Akureyri

Pósturinn leitar að tveimur kraftmiklum og jákvæðum þjónustufulltrúum til starfa hjá þjónustuveri Póstsins á Akureyri. Viðkomandi þurfa að vera 20 ára eða eldri.

Starfið felur í sér að veita viðskiptavinum Póstsins margvíslega þjónustu eins og að taka á móti símtölum, sinna netsamtali, veita almennar upplýsingar, ráðgjöf, meðhöndla ábendingar frá viðskiptavinum og önnur tilfallandi verkefni.

Vinnutíminn er frá klukkan 09:00 til 17:00 mánudaga til fimmtudaga og frá 09:00 til 16:00 á föstudögum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Reynsla af þjónustustörfum er æskileg
  • Lausnamiðuð hugsun
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.

Umsóknarfrestur er til og með 17. september. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Bergrós Pétursdóttir, þjónustustjóri, í tölvupósti - [email protected].

Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.

Advertisement published8. September 2026
Application deadline17. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Norðurtangi 3, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags