Framtíðarstarf í Öryggisleit
Við leitum að þjónustulunduðum og glaðlyndum einstaklingum til að sinna öryggisleit við farþega á Keflavíkurflugvelli. Unnið er á vöktum samkvæmt óskavaktakerfi og um er að ræða framtíðarstörf í 50%-80% starfshlutfalli.
Í Öryggisleit vinna að jafnaði 200 einstaklingar við skimun farþega og farangurs en þar fara í gegn allir farþegar á leið erlendis. Starfsfólk Öryggisleitar sinnir því mikilvæga hlutverki að þjónusta farþega og tryggja öryggi þeirra og ber því að fylgja lögum og reglugerðum í sínum störfum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Færni og geta til að halda ró og starfa undir álagi
- Framúrskarandi þjónustulund
- Rétt litaskynjun
- Aldurstakmark 25 ár
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2025.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristrún B. Hreinsdóttir teymisstjóri, í gegnum netfangið [email protected]
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.