Sumarstörf í fangelsum
Fangelsismálastofnun leitar að áhugasömu fólki til að starfa við fangavörslu í sumar. Í boði eru sumarstörf í fjórum fangelsum víðsvegar um landið.
Fangelsið Hólmsheiði er gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi fyrir öll kyn, með aðstöðu fyrir afplánun styttri fangelsisrefsinga og vararefsinga. Fangelsið er staðsett við Nesjavallaleið í Reykjavík.
Fangelsið Litla-Hrauni er lokað fangelsi fyrir karlkyns afplánunarfanga og er staðsett á Eyrarbakka.
Fangelsin Kvíabryggju og Sogni eru skilgreind sem opin fangelsi. Fangelsið Sogni er staðsett í Ölfusi og rekið í nánu samstarfi við Litla-Hraun. Fangelsið Kvíabryggju er staðsett við Grundarfjörð á Snæfellsnesi.
Við leitum að jákvæðu fólki sem er framúrskarandi í samskiptum og langar að vinna í lifandi og krefjandi starfsumhverfi. Um er að ræða bæði störf í dagvinnu og vaktavinnu. Lágmarksaldur umsækjenda er 20 ár.
-
Leiðsögn og aðstoð við skjólstæðinga
-
Eftirlit og verkstjórn
-
Þátttaka í allri daglegri starfsemi fangelsa
-
Góð almenn menntun
-
Jákvætt viðhorf og góð færni í mannlegum samskiptum
-
Metnaður, frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt og í teymum
-
Geta til að bregðast skjótt við breytilegum aðstæðum
-
Gott vald á íslensku og ensku
-
Góð tölvufærni