Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Forstöðumaður Executive MBA náms í viðskipta- og hagfræðideild

Viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík leitar að öflugum einstaklingi í stöðu forstöðumanns Executive Master of Business Administration (Executive MBA) náms við deildina auk kennslu eða annarra verkefna við deildina.


Starfið veitir tækifæri til að hafa veruleg áhrif á þróun náms við framsækna viðskipta-og hagfræðideild þar sem áhersla er lögð á nýsköpun, frumkvöðlastarf, sjálfbærni og alþjóðlegt samstarf. Executive MBA námið er hagnýtt stjórnendanám sem er ætlað stjórnendum sem vilja efla leiðtogahæfni sína, verða ábyrgir stjórnendur og auka persónulega færni í starfi. Námið eflir tengslanet við íslenskan vinnumarkað og veitir núverandi og komandi stjórnendum verkfæri til að skara fram úr.


Helstu verkefni og ábyrgð
Forstöðumaður Executive MBA námsins sinnir stjórnun og rekstri Executive MBA náms við Viðskipta- og hagfræðideild og sinnir sérstaklega:

  • Markaðs-, sölu- og kynningarmálum
  • Samskiptum við nemendur og kennara
  • Ráðningum á kennurum
  • Að gæði kennslu og námsins í heild séu tryggð
  • Þróun námsins
  • Samskiptum við erlenda samstarfsaðila og vottunaraðila
  • Ábyrgð á skipulagningu funda og viðburða
  • Samningum og áætlunargerð
  • Umsjón með fjármálum og fjárhagsáætlunargerð

Að auki felur starfið í sér aðkomu að tilfallandi verkefnum, t.d. kennslu við deildina og ekki síst þróunarverkefnum fyrir deildina og háskólann í heild.Starfið er unnið í nánu samstarfi við deildarforseta og námsráð Executive MBA náms.


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Prófgráður á meistarastigi, t.d. MBA, eða doktorspróf á sviði viðskiptafræði, hagfræði eða skyldra greina
  • Reynsla á sviði stjórnunar og stefnumótunar, reksturs, áætlunargerðar og færni á sviði fjármála
  • Leiðtogahæfni og framúrskarandi samskiptafærni
  • Tengsl við íslenskt atvinnulíf er kostur
  • Þekking og áhugi á að veita framúrskarandi þjónustu
  • Mjög góð enskukunnátta, íslenskukunnátta er kostur
  • Góð skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Reynsla af kennslu á háskólastigi er kostur
  • Reynsla af markaðs-, sölu- og kynningarmálum er kostur
  • Þekking á vottunarferli (t.d. AMBA) er kostur
  • Reynsla af alþjóðlegu samstarfi er kostur


Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:

  • Kynningarbréf
  • Starfsferilskrá
  • Afrit af viðeigandi prófskírteinum
  • Yfirlit um áhugasvið og áherslur í kennslu (e. teaching statement), ef við á
  • Gögn til vitnis um árangur í kennslu, ef við á
  • Upplýsingar um a.m.k. tvo umsagnaraðila


Umsóknarfrestur er til og með 11. október 2026. Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík. Æskilegt er ef viðkomandi getur hafið störf frá byrjun árs 2027.
Nánari upplýsingar veita dr. Stefan Wendt, deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar ([email protected]) og mannauðsdeild ([email protected]). Fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

Advertisement published24. September 2026
Application deadline11. October 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags