Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Sérfræðingur í Rannsóknaþjónustu

Háskólinn í Reykjavík óskar eftir að ráða öflugan og drífandi sérfræðing til starfa í teymi rannsóknaþjónustu HR. Viðkomandi verður í lykilhlutverki í að styðja við rannsakendur skólans á sviði styrkjaöflunar. Starfið felur í sér að mynda og viðhalda tengslum við rannsakendur innan HR og hagaðila utan háskólans, greina viðeigandi styrktækifæri og tengja þau saman á markvissan hátt. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, sjálfstæði og hæfni í mannlegum samskiptum.

Rannsóknaþjónustan er samhentur hópur sérfræðinga sem leggur áherslu á fagmennsku, samvinnu og þekkingarmiðlun. Við leggjum áherslu á opið starfsumhverfi, stöðuga fagþróun og að starfsfólk hafi töluvert svigrúm til að móta eigin verkefni. Starfsmaður heyrir undir forstöðumann rannsóknaþjónustu HR og vinnur starf sitt í samstarfi og samráði við hann.

STARFSSVIÐ

  • Byggja upp og rækta tengsl við rannsakendur og innri og ytri hagaðila
  • Auðkenna og greina styrktækifæri fyrir rannsakendur HR
  • Tengja rannsakendur við viðeigandi styrkjaköll frá innlendum og erlendum styrkveitendum
  • Veita ráðgjöf og stuðning við undirbúning umsókna (e. pre-award) og eftirfylgni styrktra verkefna (e. post-award)
  • Taka þátt í innleiðingu stafrænna lausna og þróun verkferla innan þjónustunnar
  • Taka virkan þátt í starfi rannsóknaþjónustunnar og samstarfi hennar við aðrar einingar háskólans

HÆFNISKRÖFUR

  • Háskólamenntun á meistarastigi og reynsla af rannsóknum sem nýtist í starfinu
  • Víðtæk þekking á innlendu og alþjóðlegu rannsóknastarfi, s.s. reynsla af undirbúningi samkeppnishæfra styrkumsókna, gerð fjárhagsáætlana, utanumhaldi rannsóknaverkefna, skýrslugerð og úttektum
  • Mjög góð skipulagshæfni, nákvæmni og geta til að stýra mörgum verkefnum samtímis
  • Framúrskarandi samskiptahæfni á íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
  • Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í samstarfi við akademískt starfsfólk og starfsfólk annarra stoðsviða

VIÐ BJÓÐUM UPP Á

Krefjandi, gefandi og sjálfstætt starf í alþjóðlegu háskólaumhverfi. Fjölbreytt verkefni, mikil samskipti við samstarfsfólk þvert á háskólann og ytri hagaðila, og tækifæri til að hafa bein áhrif á styrkjaöflun og rannsóknaárangur HR.

Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Með öllum umsóknum skal fylgja ferilskrá. Einnig er beðið um kynningarbréf þar sem umsækjendur rökstyðja ástæður þess að vera rétta manneskjan í starfið. Gott væri ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 27. september en umsóknir verða metnar jafnóðum og þær berast.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir, forstöðumaður rannsóknaþjónustu, ([email protected]), eða mannauður, ([email protected]). Umsóknum skal skilað á umsóknarvef HR. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Advertisement published18. September 2026
Application deadline27. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.International cooperationPathCreated with Sketch.Research papersPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Report writing
Professions
Job Tags