Travel Connect
Travel Connect
Travel Connect

STÖRF Á FJÁRMÁLASVIÐI

Við leitum að öflugu og lausnamiðuðu starfsfólki til að sinna fjölbreyttum verkefnum á fjármálasviði Travel Connect Services.

Á fjármálasviði starfar samhentur hópur þvert á fyrirtæki Travel Connect og hefur það hlutverk að skrá og greina viðskipti fyrirtækisins. Mikil samvinna og gleði er á sviðinu og skarast verkefni starfsfólks. Við leitum að einstaklingum sem hafa áhuga á fjármálatengdum verkefnum, njóta sín vel í dýnamísku umhverfi og hafa hæfni til að koma auga á umbótatækifæri í starfsemi og vinnubrögðum. Um er að ræða fullt starf og er starfsaðstaðan í hlýlegu og nýuppgerðu skrifstofuhúsnæði í Reykjavík.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Færsla fjárhagsbókhalds í rafrænum lausnum
  • Samskipti við samstarfsfólk, birgja og aðra samstarfsaðila
  • Aðstoð við uppgjör í lok mánaðar og árs
  • Aðstoð við innheimtu viðskiptakrafna
  • Þátttaka í öðrum verkefnum á fjármálasviði

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Góð Excel kunnátta
  • Góð samskiptahæfni og geta til að vinna bæði sjálfstætt og sem hluti af teymi
  • Skipulagshæfni, samviskusemi og frumkvæði í vinnubrögðum
  • Hæfni og vilji til að tileinka sér stafrænar lausnir, meðal annars notkun á gervigreind/AI
  • Starfsreynsla við bókhald og fjármál er góður kostur en ekki krafa
  • Gott vald á íslensku og ensku

Um Travel Connect

Travel Connect er ört vaxandi fyrirtæki í ferðaþjónustu. Travel Connect rekur níu ferðaskrifstofur, sem leggja áherslu á mismunandi markhópa, og styður Travel Connect Services við þær með almennri stoðþjónustu. Hjá félaginu starfa um 400 manns, flestir á Íslandi, en einnig á skrifstofum okkar í Svíþjóð, Noregi, Skotlandi, Þýskalandi og Ítalíu. Í Reykjavík er skrifstofa Travel Connect í nýuppgerðu, glæsilegu húsnæði við Suðurlandsbraut 34.

Framúrskarandi vinnustaðamenning

Okkur er umhugað um velferð starfsfólks og leggjum mikla áherslu á að skapa gott, hlýlegt og árangursdrifið vinnuumhverfi, enda trúum við því að ánægja starfsfólks skili sér í góðum árangri félagsins. Við getum flaggað góðum rekstrarárangri og höfum til margra ára fengið viðurkenningu sem Fyrirtæki ársins í árlegri könnun VR. Í ár vorum við einnig kosin Fjölskylduvænasti vinnustaðurinn í flokki stórra fyrirtækja. Til viðbótar við framúrskarandi vinnuumhverfi bjóðum við fjölda fríðinda til starfsfólks svo sem góðan hádegismat, sveigjanleika í starfi, virkt starfsmannafélag, nuddstóla og frábæra samstarfsfélaga.

Allra stoltust erum við af áherslum okkar um jafnvægi milli vinnu og einkalífs og erum m.a. með sjö tíma vinnudag, að hádegismat meðtöldum.

Við hlökkum til að heyra frá þér og fá að kynna okkur betur!

Frekari upplýsingar

Tekið er á móti öllum umsóknum í gegnum Alfred.is, hvort sem er á íslensku eða ensku.

Ef þú hefur frekari spurningar um starfið, þá er velkomið að hafa samband við:

Eva Karen Björnsdóttir, Finance Team Manager, [email protected]

Kristjana Milla Snorradóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, [email protected]

Advertisement published17. September 2026
Application deadline27. September 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Meðalhæfni
IcelandicIcelandic
Required
Meðalhæfni
Location
Suðurlandsbraut 34, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Microsoft 365PathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags