Efling stéttarfélag
Efling stéttarfélag

Starfsmaður í félagsmálum

Efling stéttarfélag leitar að öflugum og metnaðarfullum starfsmanni á Vinnumarkaðs- og félagsmálasvið. Starfið heyrir undir sviðsstjóra og er unnið þvert á geirateymi eftir því sem verkefni krefjast.

Starfið er fjölbreytt og felur í sér að styðja við félagsstarf Eflingar, trúnaðarmenn, ráð og nefndir ásamt því að taka þátt í undirbúningi og framkvæmd viðburða og fræðslu. Um er að ræða gott tækifæri fyrir skipulagðan og framtakssaman einstakling sem vill öðlast fjölbreytta reynslu af félagsstarfi, viðburðahaldi, miðlun og samskiptum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoð við öflun trúnaðarmanna og viðhald trúnaðarmannakerfisins í samstarfi við geirateymi og annað starfsfólk sviðsins.
  • Undirbúningur, kynning og framkvæmd viðburða félagsins samkvæmt viðburðadagskrá starfsársins, auk viðburða sem ákveðnir eru með skemmri fyrirvara.
  • Verkleg umsjón og utanumhald á viðburðum, þar á meðal opnun og lokun húsnæðis, uppsetning merkinga, húsgagna og tæknibúnaðar, umsjón með þjófavarnarkerfi og undirbúningur, móttaka og frágangur veitinga.
  • Stuðningur við starf trúnaðarráðs og annarra nefnda og ráða, þar á meðal samninganefnda.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Áhugi á félagsstarfi og réttindamálum launafólks.
  • Góð skipulagshæfni, nákvæmni og geta til að halda utan um mörg og fjölbreytt verkefni.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki ásamt vilja til að læra og tileinka sér ný vinnubrögð.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni, þjónustulund og jákvætt viðmót.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta og færni til að tjá sig skýrt í ræðu og riti. Þekking á fleiri tungumálum er mikill kostur.
  • Færni í textagerð, yfirlestri og miðlun upplýsinga, m.a. á vef, samfélagsmiðlum og í tölvupósti, er kostur.
  • Reynsla af viðburðahaldi, félagsstarfi eða öðru skipulagsstarfi er kostur en ekki skilyrði.
  • Góð almenn tölvukunnátta og færni í Microsoft 365.

Efling stéttarfélag er í dag eitt stærsta og öflugasta stéttarfélag landsins. Eflingarfélagar bera uppi íslenskt samfélag, þeir sinna grunnstoðum þess, vinna við umönnun, ræstingu, ferðaþjónustu, þjónustu auk fjölda annarra starfa verkafólks. Þetta eru störf sem halda samfélaginu gangandi en hafa lengi verið vanmetin og vangreidd. Efling berst fyrir réttlæti, jöfnuði og sanngjarnri hlutdeild félagsmanna sinna í verðmætasköpun samfélagsins.

Skrifstofa Eflingar stéttarfélags sinnir fjölbreyttum verkefnum sem miða að því að tryggja félagsfólki réttindi, bætt kjör og öryggi á vinnumarkaði. Meðal kjarnastarfsemi félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna og veita aðstoð ef grunur leikur á að lög eða kjarasamningar séu brotin.

www.efling.is

Umsóknarfrestur er til og með 23. september nk.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Nánari upplýsingar veita Bjarki Pétursson ([email protected]) og Jensína K. Böðvarsdóttir, ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Advertisement published14. September 2026
Application deadline23. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.General computer knowledgePathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Content writingPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Event managementPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags