
Bókhaldsfulltrúi í fjármáladeild
Faxaflóahafnir leita að metnaðarfullum einstakling
í starf bókhaldsfulltrúa í fjármáladeild
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
* Skráning og bókun innkaupareikninga í fjárhagskerfi
* Sölureikningagerð
* Eftirfylgni með innheimtu
* Samskipti við viðskiptavini og lánadrottna
* Almenn aðstoð við verkefni fjármáladeildar
* Önnur tilfallandi verkefni á viðskiptasviði
Menntunar- og hæfniskröfur
* Haldgóð reynsla og þekking á bókhaldi og afstemmingum
* Reynsla af bókhaldskerfum. Reynsla og/eða þekking á Dynamics 365
* Business Central kostur
* Góð kunnátta á Excel
* Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða viðurkenndur bókari
* Sjálfstæði og góð samskiptahæfni
* Hæfni til að vinna í hópum
Faxaflóahafnir er stærsta höfn landsins þar sem starfa um 80 manns og er
umráðasvæði hennar í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi.
Fyrirtækið leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum
auk þess að vera í vegferð að þróa snjallar og grænar hafnir.
Sá einstaklingar sem við leitum að í starfið þarf að hafa góða hæfni í mannlegum
samskiptum, vera sjálfstæður í starfi og hafa haldgóða reynslu til viðkomandi
verkefna. Ef þú ert slíkur einstaklingur þá viljum við heyra frá þér.
Starfsmaðurinn mun hafa aðstöðu í Hafnarhúsinu - skrifstofu Faxaflóahafna, Tryggvagötu 17 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Friðrik Þór Hjálmarsson sviðsstjóri Viðskiptasviðs.
[email protected]
Við hvetjum hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk til að sækja um starfið, óháð kyni, en fyrirtækið hefur skýra jafnréttisstefnu og vill auka fjölbreytileika í starfsemi sinni. Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna á netfangið [email protected], eigi síðar en sunnudaginn 27. september n.k.
Icelandic










