BM Vallá
BM Vallá
BM Vallá

Rannsóknartæknir

BM Vallá leitar að öflugum og nákvæmum einstaklingi til starfa á rannsóknarstofu fyrirtækisins.

Starfið er fjölbreytt og verklegt og felst meðal annars í rannsóknum, prófunum og sýnatöku á steinefnum, steinsteypu og öðrum framleiðsluvörum. Rannsóknartæknir gegnir mikilvægu hlutverki í gæðaeftirliti fyrirtækisins og vinnur náið með starfsfólki rannsóknarstofu og framleiðslu.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á verklegum og tæknilegum verkefnum, vinnur af nákvæmni og öryggi og á auðvelt með að tileinka sér ný vinnubrögð. Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi er kostur en ekki skilyrði. Þjálfun í helstu verkefnum fer fram í starfi.

Vinnutími er frá kl. 08:00 til 16:00 virka daga.

Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rannsóknir, sýnataka og prófanir á steinefnum, steinsteypu, hellum og öðrum framleiðsluvörum 
  • Gæðaeftirlit með framleiðslu 
  • Skráning og úrvinnsla gagna 
  • Skýrslugerð og miðlun upplýsinga 
  • Umsjón með góðri umgengni á rannsóknarstofu og að vinnuaðstöðu og búnaði sé haldið hreinum, snyrtilegum og öruggum. 
  • Þátttaka í gæða- og þróunarverkefnum eftir þörfum 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nákvæm, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð

  • Áreiðanleiki, stundvísi og jákvætt viðhorf 

  • Talnaglöggvi og hæfni til að vinna með niðurstöður Sérð  

  • Góð almenn tölvukunnátta 

  • Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran hátt 

  • Góð íslensku- og/eða enskukunnátta 

  • Reynsla af rannsóknarstofu, framleiðslu, byggingariðnaði eða gæðaeftirliti er kostur en ekki skilyrði 

Fríðindi í starfi

Aðgangur að mötuneyti í hádeginu

Hvers vegna að starfa hjá BM Vallá

1) Áherslur í umhverfismálum

Við vinnum að því að gera mannvirkjagerð landsins umhverfisvænni með vörum og lausnum sem hafa jákvæðari umhverfisáhrif. Umhverfismál, sjálfbærni, gæði og góð þjónusta er sameiginlegur drifkraftur okkar og hvetur okkur áfram í starfi.

2) Áherslur á vellíðan og öryggi

Við leggjum áherslu á öryggismál og vellíðan með sterka öryggismenningu - enda eiga allir að koma heilir heim eftir vinnudaginn. Starfsfólk er hvatt til þess að leggja rækt við andlega og líkamlega heilsu. Við erum fjölskylduvænn vinnustaður, bjóðum upp á góða heilsuverndarþjónustu og frían hádegismat (utan hlunnindaskatt). 

3) Áherslur á liðsheild

Við vitum að gott samstarf er lykillinn að árangri. Þess vegna byggjum við upp öfluga liðsheild og tryggjum starfsskilyrði sem stuðla að starfsánægju og starfsþróun. Reglulegir viðburðir og öflugt starfsmannafélag skapa skemmtilegar samverustundir með vinnufélögum og mökum.  

4) Áherslur á fræðslumál

Við styðjum við bakið á fróðleiksfúsum starfsmönnum og starfrækjum fræðslukerfið Samsteypuna til að halda utan um stafrænt fræðsluefni fyrir starfsfólk. Starfsfólk af erlendum uppruna fær einnig aðgang að stafrænum íslenskukennara til að efla íslenskukunnáttu.

Smelltu á hlekkinn til að fræðast meira um vinnustaðinn.

----

Um fyrirtækin 

BM Vallá er í eigu Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf., sem rekur einnig Björgun og Sementsverksmiðjuna. Hjá fyrirtækjunum starfar fjölbreyttur og samhentur hópur fólks að því að gera mannvirkjagerð á Íslandi umhverfisvænni. Starfsfólk hjá móður- og dótturfélögum er hátt í 200 talsins. Við erum fjölþjóðlegur vinnustaður og fögnum fjölbreytileikanum, ólíkri menningu og bakgrunni.

Komdu í lið með okkur og byggjum vistvænni framtíð saman.

Við biðjum þig um að senda okkur rafræna starfsumsókn í gegnum Alfreð.

Advertisement published17. September 2026
Application deadline5. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Bíldshöfði 7, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Risk analysisPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.Designing proceduresPathCreated with Sketch.Implementing proceduresPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Quality tracking systemsPathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.Project management
Professions
Job Tags