Íslandssjóðir
Íslandssjóðir
Íslandssjóðir

Sjóðstjóri hlutabréfasjóða hjá Íslandssjóðum

Íslandssjóðir leita að öflugum og metnaðarfullum sjóðstjóra til að stýra hlutabréfasjóðum félagsins.

Íslandssjóðir eru leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki landsins og bjóða fjölbreytt úrval verðbréfasjóða og sérhæfðra fjárfestingalausna fyrir einstaklinga, fyrirtæki og fagfjárfesta. Hjá félaginu starfar öflugur hópur sérfræðinga með víðtæka reynslu af fjármálamörkuðum og eignastýringu, þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, agað fjárfestingarferli og ábyrgar fjárfestingar.

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með sterka greiningarhæfni, góða þekkingu á fjármálamörkuðum og brennandi áhuga á fjárfestingum. Æskilegt er að viðkomandi sé framtakssamur og söludrifinn, hafi gott lag á samskiptum og geti tekið virkan þátt í að þróa og efla viðskiptasambönd félagsins. Starfið býður upp á krefjandi og fjölbreytt verkefni í öflugu starfsumhverfi þar sem árangur, samstarf og fagleg framþróun eru í fyrirrúmi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greining markaða, fyrirtækja og fjárfestingarkosta á innlendum hlutabréfamarkaði.
  • Mat á fjárfestingatækifærum og fjárfestingaákvarðanir.
  • Samskipti við samstarfsaðila og viðskiptavini.
  • Áframhaldandi þróun á vörum og þjónustu.
  • Önnur verkefni samkvæmt nánara samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla og góð þekking á fjármálamörkuðum, fjárfestingum og verðbréfum.
  • Sterk greiningarhæfni til að taka upplýstar ákvarðanir.
  • Sjálfstæð, öguð og fagleg vinnubrögð.
  • Frumkvæði, metnaður og drifkraftur.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
  • Verðbréfaréttindi eru æskileg.
Fríðindi í starfi
  • Krefjandi og áhrifamikið starf hjá leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki.
  • Tækifæri til að starfa með öflugu teymi sérfræðinga.
  • Metnaðarfullt og faglegt starfsumhverfi sem styður við frumkvæði og þróun.
  • Tækifæri til faglegs vaxtar og þróunar.
Advertisement published18. September 2026
Application deadline28. September 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DeterminationPathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.Financial planningPathCreated with Sketch.Change managementPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.Asset managementPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Cash flowPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.Business strategyPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags