Landsbankinn
Landsbankinn
Landsbankinn

Sérfræðingur í innri endurskoðun

Við leitum að metnaðarfullum sérfræðingi til starfa í innri endurskoðun Landsbankans. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni, samskipti við stjórnendur og sérfræðinga á ólíkum sviðum og tækifæri til stöðugrar faglegrar þróunar. Hlutverk deildarinnar er að veita óháða og hlutlæga staðfestingu og sýn á virkni innra eftirlits og vinnubrögð bankans með áhættumiðuðum, virðisaukandi skoðunum sem styðja við hlítni.

    Helstu verkefni og ábyrgð
    • Þátttaka í undirbúningi og framkvæmd skoðana.
    • Greining og mat á stjórnarháttum, áhættustýringu og virkni innra eftirlits.
    • Mat á fylgni við lög, reglur og innra regluverk.
    • Gerð skýrslna og framsetning niðurstaðna og tillagna að úrbótum
    • Þátttaka í gæðastarfi deildarinnar og nýtingu tækni og gervigreindar í innri endurskoðun.
    Menntunar- og hæfniskröfur
    • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
    • Góð samskiptafærni og hæfni til að miðla upplýsingum og niðurstöðum með skýrum hætti.
    • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði, dómgreind og gagnrýnin hugsun.
    • Greiningar- og skipulagshæfni.
    • Góð íslensku- og enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
    • Reynsla af starfsemi fjármálafyrirtækja og fagvottun á sviði innri endurskoðunar er kostur.
    Advertisement published10. September 2026
    Application deadline24. September 2026
    Language skills
    EnglishEnglish
    Required
    Expert
    IcelandicIcelandic
    Required
    Expert
    Location
    Reykjastræti 6
    Type of work
    Professions
    Job Tags