Landsnet hf.
Landsnet hf.
Landsnet hf.

Forstöðumaður tækni og hönnunar

Forstöðumaður tækni og hönnunar leiðir sérfræðiteymi sem gegnir lykilhlutverki í þróun tæknilegra lausna, hönnunarforsendna og innleiðingu stafrænna tengivirkja fyrir flutningskerfi framtíðarinnar. Viðkomandi er hluti af stjórnendateymi á sviði Framkvæmda og eignastýringar og tekur þátt í að móta stefnu, forgangsröðun og þróun starfseminnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða og þróa teymi tækni og hönnunar
  • Móta stefnu, verklag og hönnunarforsendur fyrir flutningsmannvirki Landsnets
  • Leiða innleiðingu og þróun stafrænna tengivirkja
  • Leiða þróun mæla-, stjórn- og varnarbúnaðar í tengivirkjum
  • Veita tæknilega ráðgjöf og stuðning við framkvæmda- og rekstrarverkefni
  • Stuðla að stöðugum umbótum, nýsköpun og tæknilegri framþróun
  • Byggja upp árangursdrifna menningu, starfsþróun og samvinnu innan teymisins

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af tengdri starfsemi og þekking á raforkukerfum er kostur
  • Reynsla af stjórnun og þróun teyma
  • Færni og frumkvæði í að skapa og leiða öflugt sérfræðiteymi
  • Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að leiða samstarf þvert á starfssvið
  • Hæfni til að styðja fólk til árangurs og byggja upp sterka liðsheild
  • Vaxtarhugarfar og lausnamiðuð hugsun í stjórnun starfsfólks og verkefna

Ef þú hefur áhuga á að leiða öflugt sérfræðiteymi og taka þátt í að móta framtíð flutningskerfis raforku á Íslandi viljum við gjarnan heyra frá þér

Landsnet býður upp á skemmtilegt vinnuumhverfi, spennandi verkefni, dásamlegt mötuneyti og aðstöðu til líkamsræktar. Hjá okkur eru góð tækifæri til starfsþróunar, frábærir vinnufélagar og fjölbreyttir styrkir.

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem – [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 27. september.

Advertisement published11. September 2026
Application deadline27. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags