Rafíþróttasamband Íslands
Rafíþróttasamband Íslands

Framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands

Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) leitar að öflugum einstaklingi í starf framkvæmdastjóra sambandsins.

RÍSÍ hefur vaxið hratt undanfarin ár og starfsemi sambandsins er í dag fjölbreytt. Starfið er metnaðarfullt og framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri sambandsins og leiðir áframhaldandi uppbyggingu þess í samstarfi við stjórn, starfsfólk, aðildarfélög og samstarfsaðila.

Um er að ræða fjölbreytt stjórnunarstarf þar sem reynir á frumkvæði, sjálfstæði og getu til að koma verkefnum frá hugmynd í framkvæmd.

Um fullt starf er að ræða.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir reynslu sinni, hæfni og áhuga á starfinu.

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar veitir Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri RÍSÍ, í gegnum [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 25. september nk.

Helstu verkefni og ábyrgð
  1. Dagleg stjórnun og rekstur Rafíþróttasambands Íslands.
  2. Fjármál, fjármögnun og eftirfylgni með rekstraráætlunum sambandsins.
  3. Öflun styrkja og samstarfssamninga ásamt samskiptum við styrktaraðila og samstarfsaðila.
  4. Stjórnun starfsfólks og verkefna sambandsins.
  5. Samskipti við stjórn, aðildarfélög, stjórnvöld, ÍSÍ og aðra hagaðila.
  6. Áframhaldandi uppbygging rafíþrótta á Íslandi og þróun nýrra verkefna og tekjustoða.
  7. Yfirumsjón með innlendum og alþjóðlegum verkefnum sambandsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  1. Hefur reynslu af stjórnun, rekstri, verkefnastjórnun eða sambærilegum störfum.
  2. Er sjálfstæður, skipulagður og lausnamiðaður og á auðvelt með að taka ábyrgð.
  3. Hefur góða samskipta- og leiðtogahæfni.
  4. Hefur hæfni þegar kemur að sölumálum.
  5. Hefur gott viðskiptavit og skilning á fjármálum og rekstri.
  6. Getur byggt upp og viðhaldið sterkum tengslum við ólíka samstarfsaðila.
  7. Hefur mjög góða íslensku- og enskukunnáttu.
  8. Hefur áhuga á íþróttum, rafíþróttum, félagsstarfi eða uppbyggingu nýrrar starfsemi. Þekking á rafíþróttum er kostur en ekki skilyrði.
Fríðindi í starfi

RÍSÍ býður upp á einstakt tækifæri til að leiða áfram uppbyggingu ungs og ört vaxandi íþróttasambands. Starfið býður upp á mikið sjálfstæði, fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun rafíþrótta á Íslandi.

Advertisement published11. September 2026
Application deadline25. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Stórhöfði 29, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Public relationsPathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.Financial planningPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.ContractsPathCreated with Sketch.Personnel administrationPathCreated with Sketch.Business strategy
Professions
Job Tags