Samhjálp
Samhjálp

Forstöðumaður í Hlaðgerðarkoti

Samhjálp leitar að drífandi forstöðumanni til að leiða öflugt teymi á meðferðarheimilinu Hlaðgerðarkoti.

Hlaðgerðarkot er elsta starfandi meðferðarheimili landsins, staðsett í fallegri náttúru Mosfellsdals. Í Hlaðgerðarkoti starfar reynslumikið teymi áfengis- og vímuefnaráðgjafa, læknis, hjúkrunarfræðings auk annarra sérfræðinga sem hafa sérhæft sig í vinnu með einstaklingum með fíknivanda. Meðferðin byggir m.a. á fræðslu, hópastarfi, einstaklingsviðtölum og sjálfsvinnu þar sem áhersla er lögð á ábyrgð, von og ný tækifæri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun Hlaðgerðarkots
  • Stuðla að öflugri liðsheild, góðum samskiptum og heilbrigðu starfsumhverfi
  • Ábyrgð á fjárhags- og starfsáætlun
  • Ábyrgð á undirbúningi stefnumótunar í samráði við framkvæmdastjóra, þekkingaröflun og þróunarstarfi
  • Forstöðumaður er hluti af stjórnendateymi Samhjálpar
  • Bera ábyrgð á að þjónusta Hlaðgerðarkots uppfylli lög, reglugerðir um rekstur heilbrigðisþjónustu, faglegar gæðakröfur og stuðlar að virku innra eftirliti og stöðugum umbótum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi og/eða sambærileg og viðeigandi starfsreynsla
  • Farsæl stjórnunarreynsla og reynsla af mannaforráðum
  • Þekking og reynsla af rekstri
  • Þekking og reynsla af velferðarmálum
  • Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
  • Framsýni, metnaður, skipulagshæfileikar, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi
  • Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og færni til að byggja upp traust og góð tengsl við ólíkt fólk
  • Geta samsamað sig gildum og tilgangi starfseminnar
Advertisement published8. September 2026
Application deadline23. September 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hlaðgerðarkot
Type of work
Professions
Job Tags