Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Forstöðumaður búsetuúrræðis á höfuðborgarsvæðinu

Nýtt hlutverk Barna- og fjölskyldustofu felst í að sinna málefnum barna með fjölþættar stuðningsþarfir út frá samkomulagi ríkis og sveitarfélaga. Barna- og fjölskyldustofa leitar því að framsæknum leiðtoga sem hefur þekkingu á málefnum barna með fjölþættar stuðningsþarfir og hæfni til að leiða nýtt sérhæft búsetuúrræði. Um er að ræða búsetuúrræði sem veitir börnum með fjölþættar stuðningsþarfir einstaklingsmiðaðan og faglegan stuðning í öruggu umhverfi. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra sviðs búsetu og samþættrar þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun og rekstur búsetuúrræðisins.

  • Ábyrgð á faglegu starfi búsetuúrræðisins.

  • Leiða þróun faglegs starfs og þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir í samstarfi við fagteymi sviðsins.

  • Ábyrgð á samskiptum við barnaverndarþjónustu, fjölskyldur og aðra lykilaðila í þjónustu við börnin.

  • Þátttaka í stefnumótun og nýsköpun innan stofnunarinnar.

  • Fer með mannaforráð.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistarapróf í sálfræði, félagsráðgjöf, uppeldisfræði eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi.

  • Reynsla af starfi með börnum með fjölþættar stuðningsþarfir og fjölskyldum þeirra.

  • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur.

  • Þekking á innleiðingu nýrra verkefna kostur.

  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptafærni.

  • Skipulagshæfileikar og geta til að hafa yfirsýn og umsjón með verkefnum.

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg, önnur tungumálakunnátta er kostur.

Advertisement published4. September 2026
Application deadline14. September 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Borgartún 29, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags