
Slökkvilið Fjarðabyggðar
Slökkvilið Fjarðabyggðar sinnir mikilvægu hlutverki í öryggis- og neyðarþjónustu sveitarfélagsins og er ávallt reiðubúið til að bregðast skjótt við þegar hættu ber að höndum. Hlutverk þess er að vernda líf, umhverfi og eignir samkvæmt lögum um brunavarnir.
er með starfstöðvar í sex byggðarkjörnum þar sem atvinnulið starfar samhliða hlutastarfandi slökkviliðs- og sjúkraflutningsmönnum.

Varaslökkviliðsstjóri
Slökkvilið Fjarðabyggðar auglýsir laust til umsóknar starf varaslökkviliðsstjóra. Um er að ræða 100% starf auk bakvakta, með starfsstöð í aðal slökkvistöð liðsin að Hrauni á Reyðarfirði. Slökkvilið Fjarðabyggðar er með fimm starfstöðvar þar sem atvinnulið starfar samhliða hlutastarfandi slökkviliðs- og sjúkraflutningsmönnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni:
- Hluti af stjórnandateymi slökkviliðs.
- Telst til vakthafandi liðsheildar og sinnir útköllum þegar þörf er á vegna álags og mönnunar liðsins.
- Dagleg stjórn á útkallsdeild liðsins og skipuleggur æfingar og þjálfun þess.
- Umsjón með vaktskipulagi, fjarveruskráningum og afleysingum.
- Umsjón með tímaskýrslum og gerð launskýrslna.
- Skipuleggur fræðslu til stofnanna, fyrirtækja og almennings vegna brunavarna.
- Gerð verkferla sem varða viðfangsefni slökkviliðsins, aðstoð við gerð slökkvi- og viðbragðsáætlana.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Uppfylla skilyrði reglugerðar nr. 792/2001 um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna og laga nr. 75/2000 um brunamál.
- Löggilding sem slökkviliðs-og sjúkraflutningamaður.
- Farsæl reynsla af stjórnun áskilin.
- Leiðtogahæfni, drifkraftur og fagmennska.
- Jákvætt viðhorf og framúrskarandi samskiptahæfni.
- Færni til að koma frá sér efni í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku.
- Almenn tölvufærni.
Advertisement published1. September 2026
Application deadline1. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Hrauni
Type of work
Skills
DeterminationAmbitionIndependenceTeam work
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (9)

Forstöðumaður búsetuúrræðis á höfuðborgarsvæðinu
Barna- og fjölskyldustofa

Vaktstjóri á Bari – vinsæll vínbar og smáréttastaður í miðborginni
Bari

Hjúkrunardeildarstjóri á bráðadagdeild lyflækninga og heimaspítala
Landspítali

Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Landspítali

Framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs
Hrafnista

Forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi
Hrafnista

Deildarstjóri innkaupa og birgðastýringar
STOÐ

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Laugarásinn meðferðargeðdeild
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á líknardeild
Landspítali