

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á líknardeild
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar óskast til starfa á líknardeild í fallegu umhverfi við sjávarsíðuna í Kópavogi.
Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á stjórnun, faglegri þróun og umbótastarfi. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri samskiptahæfni, frumkvæði og sveigjanleika og hafa áhuga á teymisvinnu og þróun þjónustunnar. Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með hjúkrunardeildarstjóra að skipulagningu hjúkrunar, þróun starfseminnar og innleiðingu nýjunga. Starfið felur einnig í sér þátttöku í verkefnum tengdum stjórnun, mannauði, þjónustu og gæðum.
Líknarmeðferð miðast við að bæta lífsgæði og draga úr einkennum hjá sjúklingum með alvarlega, langvinna lífógnandi sjúkdóma. Áhersla er á að veita virkan stuðning við aðstandendur þeirra.
Á líknardeild starfa um 60 einstaklingar og mikil áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu og fjölskylduhjúkrun. Starfsumhverfið einkennist að miklum faglegum metnaði og góðum starfsanda. Sálrænn stuðningur og viðrunarfundir eru fastir þættir sem stuðningur við starfsfólk deildarinnar, leitt af reyndum fagaðilum.
Starfshlutfall er 80-100% og vinnufyrirkomulag vaktavinna. Starfið er laust 1. október 2026 eða eftir samkomulagi. Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Ólöfu Ásdísi, deildarstjóra og sjálfsagt að koma og skoða aðstæður. Næg bílastæði eru við líknardeildina.
- Vinnur í samráði við hjúkrunardeildarstjóra að skipulagningu á starfsemi deildar
- Ber ábyrgð á verkefnum sem hjúkrunardeildarstjóri felur honum samkvæmt sérstakri verkefnalýsingu
- Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun
- Ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í fjarveru og í samráði við hjúkrunardeildarstjóra
- Er ábyrgur fyrir skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar í fjarveru hjúkrunardeildarstjóra
- Vinnur náið með deildarstjóra að mótun liðsheildar
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Stjórnunarþekking og leiðtogahæfni
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Einlægur áhugi á hjúkrun sjúklinga í líknarhjúkrun
- Faglegur metnaður, öguð vinnubrögð og ábyrgð í starfi
- Jákvætt hugarfar og framúrskarandi hæfni í samskiptum og teymisvinnu
- Leiðtogahæfni og umbótamiðuð hugsun
- Góð íslenskukunnátta, bæði í máli og riti
Icelandic






































