

Þjónustustjóri á krabbameinsmiðstöð - ný staða
Landspítali óskar eftir að ráða metnaðarfulla og framsýna hjúkrunarfræðinga í nýtt og mikilvægt starf þverfaglegs þjónustustjóra í krabbameinsþjónustu. Um er að ræða dagvinnu og er stefnt að því að ráðning hefjist 1. október 2026, eða eftir samkomulagi.
Um er að ræða lykilhlutverk í áframhaldandi uppbyggingu Krabbameinsmiðstöðvar Landspítala þar sem lögð er áhersla á samfellda, samhæfða og einstaklingsmiðaða þjónustu við sjúklinga frá greiningu til loka meðferðar. Fyrst í stað verður ráðið í tvö 60-100% störf í dagvinnu með áherslu á ákveðin krabbamein. Störfin tengjast m.a. innleiðingu og þróun .
Um starfið
Þjónustustjóri hefur heildaryfirsýn yfir meðferðarferli sjúklinga og gegnir lykilhlutverki í að tryggja samfellda þjónustu þvert á svið spítalans og eftir atvikum við stofnanir utan Landspítala. Starfið felur í sér náið samstarf við þverfagleg teymi, stuðning við sjúklinga og aðstandendur og virka þátttöku í umbótastarfi.
Þjónustustjóri starfar þvert á klínískar einingar og er tengiliður sem tryggir að sjúklingar falli ekki á milli þjónustustiga.
Við bjóðum
Tækifæri til að móta nýtt og mikilvægt hlutverk innan krabbameinsmiðstöðvar
Fjölbreytt og krefjandi starf í öflugu þverfaglegu starfsumhverfi
Virka þátttöku í þróun, umbótum og framtíðarsýn þjónustunnar
Starf í teymi þar sem áhersla er á fagmennsku, samvinnu og nýsköpun
Starfið er ekki bundið við eina fasta starfsstöð en fer fram innan húsakynna Landspítala út frá verkefnum hverju sinni
Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur krabbameinsþjónustu.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Icelandic
English









































