Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Heilsugæsluritari - Heyrnar og talmeinastöð HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir að ráða heilsugæsluritara til starfa hjá Heyrnar og talmeinastöð (HT). Um er að ræða 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Heyrnar og talmeinastöð HH er miðstöð þekkingar í heyrnar og talmeinum á Íslandi sem veitir þjónustu á landsvísu. Hlutverk HT er að þjóna þeim sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða með mál og talmein.

Við leitum af öflugum heilsugæsluritara til starfa í fjölbreytt verkefni. Starfið felur meðal annars í sér almenn skrifstofustörf, skráningu gagna, umsjón með tímabókunum skjólstæðinga, skjalavörslu og samskipti við lækna og aðra samstarfsaðila. Starfið krefst góðrar skipulagshæfni, nákvæmni og þjónustulundar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skráir gögn s.s. tilvísanir og vottorð í sjúkraskrárkerfi
  • Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun rannsóknarniðurstaðna, læknabréfa, frágangi gagna o.fl.
  • Umsjón með tímafjölda/dagskrá í móttöku
  • Aðstoðar við móttöku nýrra starfsmanna
  • Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
  • Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
  • Meðhöndlun heilbrigðis- og persónuupplýsinga
  • Aðstoðar móttökuritara í móttöku
  • Ýmis önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Heilbrigðisritaramenntun og/eða nám sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af ritarastarfi æskileg.
  • Reynsla af Sögukerfi kostur
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Mjög góð skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði
  • Mjög góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs við ólíka fagaðila
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta, bæði rituð og töluð
  • Góð almenn enskukunnátta er æskileg
  • Góð færni í a.m.k. einu norðurlandamáli æskileg (Dan, Sæn, Nor).
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Tækifæri til sí- og endurmenntunar
  • Samgöngustyrkur
Advertisement published25. August 2026
Application deadline7. September 2026
Language skills
ÍslenskaÍslenska
Required
Intermediate
Location
Hraunbær 115, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Planning
Work environment
Professions
Job Tags