Eimskip
Eimskip
Eimskip

Svæðisstjóri Eimskips á Norðurlandi

Eimskip leitar að metnaðarfullum og öflugum svæðisstjóra til starfa á Norðurlandi.

Hjá Eimskip á Norðurlandi starfar samhentur hópur sem sinnir fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum á sviði innanlandsflutninga, auk þjónustu tengdri inn- og útflutningi fyrir viðskiptavini á svæðinu.

Um er að ræða ábyrgðarmikið og fjölbreytt starf þar sem svæðisstjóri leiðir daglegan rekstur starfsstöðvar Eimskips á Akureyri ásamt því að hafa yfirumsjón með afgreiðslustöðum félagsins á Dalvík, Ólafsfirði og Siglufirði.

Starfsstöð svæðisstjóra er á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á daglegum rekstri
  • Þjónusta við viðskiptavini
  • Umsjón með starfsmannamálum
  • Áætlanagerð og markmiðasetning
  • Stuðningur við áframhaldandi þróun og vöxt starfseminnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða víðtæk starfsreynsla
  • Reynsla af stjórnun og rekstri
  • Reynsla af sölu og samningagerð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Framúrskarandi þjónustulund
  • Góð skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í störfum
Fríðindi í starfi
  • Farsímaáskrift og nettenging heima
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
  • Öflugt starfsmannafélag og aðgangur að orlofshúsum víðs vegar um landið
  • Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur m.a. samgöngustyrk, líkamsræktarstyrk, styrk fyrir sálfræðiþjónustu og krabbameinsskoðun
Advertisement published19. August 2026
Application deadline31. August 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Strandgata, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Financial planningPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ContractsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Personnel administration
Professions
Job Tags