Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Árbæ

Heilsugæslan Árbæ óskar eftir að ráða heimilislæknir til starfa. Um er að ræða 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. nóvember nk. eða eftir nánara samkomulagi. Til greina kemur að ráða áhugasaman almennan lækni sem hefur hug á sérnámi í heimilislækningum, fáist ekki sérfræðingur í starfið.

Við leitum að lækni sem hefur áhuga á að taka þátt í fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun. Heimilislæknir mun starfa í þverfaglegu teymi með öðrum læknum, hjúkrunarfræðingum og fagfólki í lærdómsríku starfsumhverfi.

Hjá Heilsugæslunni Árbæ starfa sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á faglegt starf, náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið heimilislæknis er víðtækt og felst m.a. í almennum lækningum, heilsuvernd og vaktþjónustu. Hann veitir fræðslu og upplýsingar og leiðbeinir skjólstæðingum og aðstandendum. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt lækningaleyfi
  • Sérfræðimenntun í heimilislækningum
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
  • Reynsla af kennslu er æskileg
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
  • Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til sí- og endurmenntunar
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Advertisement published25. August 2026
Application deadline7. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Hraunbær 115, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Medical doctorPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags