Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri yngsta stigs - Lækjarskóli

Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum deildarstjóra til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur í Lækjarskóla.

Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Nemendur eru um 450 talsins. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota. Undanfarið skólaár höfum við unnið markvisst með þrjú meginmarkmið: Samstarf heimils og skóla, heilbrigði og vellíðan og samvinna

Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.

Fyrir nokkrum árum hófst innleiðing á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíkan hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stýrir daglegu starfi á yngsta stigi í samvinnu við skólastjórnendur, kennara og foreldra
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Tekur þátt í uppbyggingu öflugrar liðsheildar á vinnustaðnum ásamt stjórnunarteymi
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntun og hæfniskröfur:

  • Kennsluréttindi (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Kennslureynsla í grunnskóla skilyrði
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og /eða uppeldis- eða kennslufræði er kostur
  • Reynsla af- og/eða þekking á SMT-skólafærni æskileg
  • Leiðtogafærni og vilji til að byggja upp sterka liðsheild
  • Frumkvæði, jákvæðni og brennandi áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góðir skipulagshæfileikar, sjálfstæði í vinnubrögðum og samviskusemi.
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt samevrópska sjálfsmatsramma

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi leggi fram hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veitir Dögg Gunnarsdóttir, skólastjóra í síma 6645877 eða með tölvupósti [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 8. júlí 2026.

Greinagóð ferilsskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Advertisement published24. June 2026
Application deadline8. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Sólvangsvegur 4, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags