

Leikskólakennari / leiðbeinandi
"Viltu taka þátt í að skapa hlýlegt og faglegt umhverfi þar sem vellíðan og þroski barna er í forgrunni?"
Vinaminni er sjálfstæður 4 deilda leikskóli í Asparfelli með 86 börnum á aldrinum 1-6 ára. Vinaminni bíður upp á hlýlegt og lærdómsríkt umhverfi þar sem samhentur hópur leggur áherslu á vellíðan, gleði og fagmennsku í starfi með börnunum.
Í Vinaminni er lögð áhersla á að börn fá tækifæri til að prófa og læra sjálf, að þeim líði vel og samskipti einkennist af virðingu og viðurkenningu.
Hjá okkur er leikurinn aðalnámsleið barnsins þar sem börn læra í gegnum leikinn og er markmið okkar að rækta sjálfstraust barna og styrkja félagsfærni og málþroska þeirra í styðjandi umhverfi.
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum leikskólakennara, leikskólaliða eða leiðbeinanda sem vill taka þátt með okkur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna
- Starfar með börnum í leik og starfi og stuðlar að vellíðan þeirra
- Tekur þátt í faglegu starfi deildarinnar undir stjórn deildarstjóra
- Framfylgir faglegri stefnu leikskólans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennari eða önnur uppeldismenntun
- Reynsla af leikskólastarfi æskileg
- Þolinmóður og jákvæður einstaklingur með góða færni í mannlegum samskiptum
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Gott vald á íslenskri tungu, bæði rituðu og töluðu máli nauðsynleg
- Frítt fæði
- Forgangur barna í leikskóla og afsláttur af dvalargjaldi
- Stuðningur og sveigjanleiki vegna náms í leikskólakennafræðum
Icelandic










