Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Stapaskóli – Skólastjóri

Reykjanesbær auglýsir starf skólastjóra í Stapaskóla. Leitað er að öflugum leiðtoga sem hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna skólasýn og er tilbúinn að leiða skapandi skólastarf sem er í stöðugri framþróun í nánu samstarfi við nemendur, starfsfólk, foreldra og menntayfirvöld.

Stapaskóli er heildstæður leik- og grunnskóli og eru um 75 börn á leikskólaaldri og 450 börn á grunnskólaaldri sem sækja skólann. Í Stapaskóla fer fram metnaðarfullt skólastarf þar sem gleði, vinátta , samvinna og virðing eru þau gildi sem höfð eru að leiðarljósi.

Megineinkenni skólans er sveigjanleiki í kennsluháttum, nýtingu rýmis, skipulagi skóladags og skilum á milli skólastiga. Stapaskóli leggur áherslu á teymiskennslu, tækni og heildstæð verkefni sem eru samþætt í gegnum námsgreinar. Einnig er sérstök áhersla á sköpun og listir og verklegt nám ásamt nánum tengslum við nærumhverfi skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans
  • Veita faglega forystu og leiða stefnumótun í samræmi við lög og reglugerðir, aðalnámskrár leik- og grunnskóla og menntastefnu Reykjanesbæjar
  • Bera ábyrgð á mannauðsmálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun
  • Bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins
  • Stuðla að jákvæðri skólamenningu þar sem velferð og vellíðan nemenda og starfsfólks er í fyrirrúmi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða
  • Reynsla af skólastjórnun og faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
  • Reynsla af rekstri skóla og gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana er æskileg
  • Mjög góð almenn tölvukunnátta
  • Leiðtogahæfni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Hlunnindi
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Advertisement published18. June 2026
Application deadline5. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Dalsbraut 2, 260 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags