Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Almenn sumarstörf fædd 2008 og eldri - Vinnuskóli Hafnarfjarðar

Vinnuskóli Hafnarfjarðar auglýsir eftir almennu sumarstarfsfólki, annars vegar í störf aðstoðarflokkstjóra í almennum garðyrkjuhópum með ungmennum og hinsvegar við almenn sumarstörf á vegum ýmissa félaga í Hafnarfirði sem eru í samstarfi við Vinnuskóla Hafnarfjarðar.

Helstu verkefni og ábyrgð.

  • Vera fyrirmynd ungs fólks
  • Þátttaka og leiðsögn í hópastarfi barna á vettvangi
  • Aðstoð við flokkstjóra Vinnuskólahópa/leikjanámskeiða
  • Önnur störf samkvæmt starfslýsingu

Hæfniskröfur

  • Áhugi á að starfa með ungmennum/börnum
  • Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er kostur
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Hafnarfjarðarbæjar
  • Íslensku -og enskukunnátta, A1 skv samevrópskum tungumálaramma

Aðrar upplýsingar um starfið

  • Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hlíf stéttarfélags

Umsóknum um almenn sumarstörf í vinnuskólanum er ekki svarað sérstaklega.

Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Vinnuskóla Hafnarfjarðar í gegnum netfangið [email protected]

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.

Advertisement published18. June 2026
Application deadline30. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Strandgata 8-10
Type of work
Professions
Job Tags