

Deildarstjóri - Leikskólinn Vesturkot
Leikskólinn Vesturkot óskar eftir að ráða deildarstjóra.
Um er að ræða 100% starf í 18 mánuði. Reiknað með að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Leikskólinn Vesturkot er fjögra deilda, staðsettur á Holtinu þar sem stutt er í ósnortna náttúruna. Stefna leikskólans tekur mið af lærdómsamfélaginu þar sem áhersla er lögð á að allir séu virkir þátttakendur í að móta og þróa skólastarfið og því leggjum við mikla áherslu á teymisvinnu. Einkunnarorð leikskólans eru leikur, samvinna og virðing. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæð og uppbyggileg samskipti. Við erum Heilsueflandi vinnustaður, vináttuleikskóli Barnaheilla, vinnum að snemmtækri íhlutun í málþroska barna og umhverfismennt er hluti af okkar starfi. Góð samvinna allra, vellíðan og starfsánægja teljum við að þurfi að vera til staðar til að geta byggt upp metnarfullt og faglegt leikskólastarf þess vegna leggjum við áherslu á slíkt starfsumhverfi.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar
- Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum
- Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl
- Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi er fram fer á deildinni
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari (Leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Upplýsingar um starfið veita Inga Þóra Ásdísardóttir leikskólastjóri og Hulda Þórarinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 565-0220 og í netfang leikskólans er [email protected]
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitafélaga og KÍ v/Félags leikskólakennara.
Umsóknarfrestur framlengdur til 3. október 2025
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.




























