Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur

Corporate Finance Coordinator | Embla Medical

Taktu þátt í spennandi verkefnum með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks.

Embla Medical (Össur) leitar að Corporate Finance Coordinator til að ganga til liðs við teymið. Um ræðir stuðning við fjármálastjóra (CFO) auk þess sem starfið felur í sér almenn skrifstofustörf og skjalaumsjón hjá lögfræðisviði samstæðunnar auk ýmissa tilfallandi verkefna innan fjármálasviðs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Utanumhald og skipulagning dagatals fjármálastjóra og umsjón yfir ferðalögum 

  • Skipulagning og uppgjör funda, almennur undirbúningur kynninga, móttaka og frágangur gagna og samskipti við utanaðkomandi aðila 

  • Undirbúningur, frágangur og umsýsla lögfræðilegra skjala, samninga og eftirfylgni með undirritunum fyrir félög innan samstæðunnar 

  • Samskipti og önnur erindi gagnvart opinberum aðilum 

  • Aðstoð við gagnaöflun og stuðningur við verkefni lögfræðideildar eftir þörfum 

  • Ýmis tilfallandi verkefni innan fjármálasviðs 

  • Önnur almenn skrifstofustörf 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði, lögfræði, samskipta eða skyldra greina er kostur

  • Að lágmarki 3 ára reynsla sem aðstoðarmaður stjórnenda eða önnur sambærileg reynsla 

  • Framúrskarandi skipulags- og tímastjórnunarhæfni 

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli 

  • Góð færni í notkun Microsoft Office (Word, Excel, PowerPoint, Outlook, SharePoint) 

  • Geta til að vinna sjálfstætt jafnt sem í teymi 

  • Heiðarleiki og fagmennska 

Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur  

  • Samgöngustyrkur  

  • Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir  

  • Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat 

  • Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf 

  • Árlegur sjálfboðaliðadagur  

  • Starfsþróun
  • Öflugt félagslíf

  • Sveigjanleiki
Advertisement published27. January 2026
Application deadline8. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.ContractsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Business administrator
Professions
Job Tags