Intellecta
Intellecta
Intellecta

Reynslumikill sérfræðingur í launagreiningum

Traust og framsækið fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða reynslumikinn sérfræðing í launagreiningum innan samstæðu félagsins. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem viðkomandi veitir stjórnendum ráðgjöf og leiðbeiningar gagnvart launakerfi og launasetningu auk þess að taka saman lykiltölur og greiningar fyrir framkvæmdastjóra mannauðs og aðra stjórnendur.


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ráðgefandi hlutverk við launadeild vegna kjarasamninga, markaðslauna og annarra mála
  • Umsjón með áætlunum á launakostnaði, stöðugildum og almennum starfsmannakostnaði
  • Ábyrgð á skýrslugerð og upplýsingagjöf til framkvæmdastjóra
  • Veitir stjórnendum stuðning vegna starfslýsinga starfsfólks hjá samstæðunni
  • Almennar umbætur tengdar launakerfi og kjaramálum
  • Ráðgjöf til stjórnenda gagnvart launakjörum starfsfólks


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Haldbær reynsla á sviði launamála og greininga
  • Góð þekking á kjarasamningum og markaðslaunum
  • Þekking og/eða reynsla af áætlunargerð á launakostnaði, stöðugildum og almennum starfsmannakostnaði
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
  • Mjög góð samskiptahæfni, þjónustulund, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Afburða tölvuhæfni, nákvæmni, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Teymisvitund, frumkvæði og faglegur metnaður


Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2026, en unnið er úr umsóknum jafnóðum og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]).

Advertisement published29. January 2026
Application deadline16. February 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Financial planningPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Report writingPathCreated with Sketch.Personnel administrationPathCreated with Sketch.Business administratorPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags