
Nathan hf.
Nathan hefur flutt inn og dreift fjölbreyttu úrvali af vörum frá mörgum af þekktustu framleiðendum heims síðan árið 1912. Nathan byggir á góðu samstarfi við fyrirtæki sem leita eftir gæðavörum og áreiðanlegri þjónustu; hvort sem það eru stórar og smáar verslanir, stóreldhús eða matvælaframleiðendur.
Okkar markmið er að styðja við árangur viðskiptavina okkar með því að einfalda öll aðföng. Hjá Nathan starfar samhentur hópur fólks með mikla sérþekkingu við að tryggja öflugar heildarlausnir í aðföngum þar sem breitt vöruúrval, hagkvæmt verð, traust afgreiðsla og persónuleg þjónusta eru í fyrirrúmi.

Vörumerkjastjóri
Nathan leitar að metnaðarfullum og öflugum vörumerkjastjóra fyrir mörg af okkar stærstu vörumerkjum.
Spennandi starf fyrir rekstrar- og markaðsmiðaðan aðila. Hlutverk vörumerkjastjóra er að áætla, stýra og samþætta markaðssetningu vörumerkja í nánu samstarfi við birgja, söluteymi og aðra hagsmunaaðila með það að markmiði að hámarka markaðshlutdeild og ánægju viðskiptavina.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón, uppbygging og markaðssetning vörumerkja
- Áætlanagerð, skýrslugjöf og eftirfylgni
- Ábyrgð á tekjum, sölu og framlegð vörumerkja
- Greining markaðar og neysluhegðun neytenda
- Samskipti við erlenda birgja, auglýsingastofu og viðskiptavini
- Samvinna við söluteymi og tengda aðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi
- Haldbær reynsla af markaðsmálum og sambærilegum verkefnum
- Áreiðanleiki, skipulagshæfileikar, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Mjög góð Excel kunnátta og greiningarhæfni
- Góð samskiptafærni, frumkvæði og drifkraftur
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði töluð og rituð
Advertisement published28. January 2026
Application deadline4. February 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Klettagarðar 19, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Verkefnastjóri á hönnunar- og framkvæmdadeild
Landspítali

Framkvæmdastjóri
Voltus

Sérfræðingur á fjármálasviði
LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Verkefnastjóri í rekstri og þróun
Happdrætti Háskóla Íslands

Ráðgjafi einstaklinga - Norðurturn
Íslandsbanki

Viðskiptastjóri – matvörusvið Danól
Danól

Corporate Finance Coordinator | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Öflugur bókari óskast til HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Verkefnastjóri LIFE-Icewater hjá Veitum
Veitur

Verkefnastjóri stafrænna kerfa
Landsnet hf.

Innkaupasérfræðingur - Fjármálasvið
Hafnarfjarðarbær

Bókari
Landsnet hf.