Veitur
Veitur
Veitur

Verkefnastjóri LIFE-Icewater hjá Veitum

Veitur er þátttakandi í LIFE-ICEWATER verkefni Umhverfis- og orkustofnunar sem miðar að innleiðingu vatnaáætlunar. Verkefnið er eitt stærsta styrkverkefni sem Ísland hefur fengið úthlutað og Veitur gegna mikilvægi hlutverki í árangri þess, sem þátttakandi í úrbótum í meðferð og hreinsun fráveituvatns á höfuðborgarsvæðinu.

Veitur mun m.a. innleiða hreinsun á ofanvatni í Kvosinni og bæta þannig vatnsgæði í Reykjavíkurtjörn. Verkefnið er samstarfsverkefni Veitna, Reykjavíkuborgar, Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og fjölda annarra samstarfsaðila. Verkefnið felur í sér nýsköpun, innleiðingu á nýjum lausnum, samráð og miðlun.

Veitur leitar að drífandi og skipulagðri manneskju til að leiða greiningu, hönnun og framkvæmd og verður hluti af teymi innan fjárfestingardeildar Vatnsmiðla, sem hefur það hlutverk að tryggja skilvirka verkefnastýringu í samræmi við stefnu Veitna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra fjárfestingarverkefnum í samræmi við verksamninga, tíma- og kostnaðaráætlanir
  • Hafa umsjón með hönnunargögnum, útboðum og verklýsingum
  • Tryggja leyfi, verksamninga og aðföng til verkefna
  • Skila verkefnum á faglegan hátt og tryggja góð samskipti við hagaðila á öllum stigum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking og árangursrík reynsla í verkefnastýringu í framkvæmdarverkefnum er skilyrði
  • Þekking og reynsla af blágrænum ofanvatnslausnum er kostur
  • Frumkvæði, framúrskarandi samskiptahæfni og sjálfstæði í starfi
  • Hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti
  • Drifkraftur og metnaður til að ná árangri
  • Áhugi á uppbyggingu innviða, umhverfismálum og umbótum
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Advertisement published21. January 2026
Application deadline3. February 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Work environment
Professions
Job Tags