Happdrætti Háskóla Íslands
Happdrætti Háskóla Íslands
Happdrætti Háskóla Íslands

Verkefnastjóri í rekstri og þróun

Verkefnastjóri rekstrar og vöruþróunar ber ábyrgð á að stýra daglegri framkvæmd á rekstrar- og umbreytingaverkefnum. Hlutverkið vinnur þvert á allar deildir og leggur áherslu á verkefnastjórnun, samhæfingu og eftirfylgni og er lykilhlutverk í nýsköpun og rekstrarumbótum hjá HHÍ.

Verkefnastjóri heyrir undir sviðsstjóra rekstrar og þróunar og vinnur náið með rekstrarstjórum vöruflokka, tækniteymum og öðrum deildum og tryggir að verkefni skili áætluðum árangri á settum tíma og innan kostnaðaráætlana.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra daglegri framkvæmd og innleiðingu rekstrar-, þróunar- og umbreytingaverkefna.
  • Skipuleggja, samræma og fylgja eftir verkefnum þvert á deildir og ábyrgðarsvið.
    Leiða stefnumarkandi verkefni og vinna eftir ferlum tengdum þeim.
  • Leiða saman utanaðkomandi birgja og starfsfólk til árangursríkra lausna á verkefnum.
  • Halda utan um verkáætlanir, kostnað, tímalínur, forgangsröðun og framvindu verkefna.
  • Safna, greina og miðla upplýsingum til stjórnenda.
  • Greina áhættu, hindranir og tækifæri í framkvæmd og leggja til lausnir.
  • Tryggja samræmi við skilgreinda ferla og gæðakröfur.
  • Styðja við samvinnu innri og ytri hagsmunaaðila eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun úr viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða tengdum greinum.
  • Meistaranám í verkefnastjórnun er kostur.
  • Að lágmarki 5 ára reynsla af verkefnastjórnun og innleiðingum úr tæknilegu umhverfi.
  • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð með sterkt innsæi fyrir framkvæmd verkefna.
  • Færni í að vinna þvert á teymi og brúa bil ólíkra hagsmuna.
  • Góð greiningarhæfni og geta til að halda utan um mörg verkefni á sama tíma.
  • Sjálfstæð vinnubrögð, ábyrgðartilfinning og frumkvæði.
  • Reiprennandi íslensku- og enskukunnátta er skilyrði.
  • Frábær samskiptahæfni, bæði skrifleg og munnleg.
Advertisement published30. January 2026
Application deadline15. February 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Dvergshöfði 2, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags