Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur

Software Developer - Bionics | Össur

Viltu taka þátt í verkefnum með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks? 

Össur er alþjóðlegt heilbrigðistæknifyrirtæki sem hannar og framleiðir stoðtæki og stuðningsvörur með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks. Bionics teymið okkar tilheyrir þróunardeild, er í fararbroddi nýsköpunar, og þróar tölvustýrða gerviliði fyrir hné og ökkla. Við leitum að hæfum og metnaðarfullum hugbúnaðarverkfræðingi til að ganga til liðs við Bionics teymið í Reykjavík.

Um er að ræða spennandi og fjölbreytt starf í þverfaglegu og alþjóðlegu teymi sérfræðinga sem vinnur saman að hönnun og þróun hugbúnaðarlausna sem tengjast stoðtækjum okkar, allt frá hugmynd að innleiðingu.

Menntunar- og hæfniskröfur

Krafa: 

  • BS gráða í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða skyldu námi 

  • Að lágmarki 3 ára starfsreynsla í hugbúnaðarþróun 

  • Góð þekking á C# og Microsoft .NET þróunarumhverfi 

  • Samskiptahæfni og mjög góð enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli 

  • Góður skilningur á vinnubrögðum í hugbúnaðarþróun og Agile-aðferðafræði 

Reynsla af eftirfarandi er kostur: 

  • Hugbúnaðarþróun með XAML og .NET þróunarumhverfi 

  • iOS þróun með Xcode, Objective-C og Swift  

  • Android þróun með Java eða Kotlin   

  • Reynsla af þróun lækningatækja eða af starfi innan reglubundins vinnuumhverfis 

Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur  

  • Samgöngustyrkur  

  • Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir  

  • Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat 

  • Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf 

  • Árlegur sjálfboðaliðadagur  

  • Starfsþróun
  • Öflugt félagslíf

  • Sveigjanleiki
Advertisement published9. January 2026
Application deadline1. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch..NETPathCreated with Sketch.AgilePathCreated with Sketch.C#PathCreated with Sketch.Software testingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Computer scientist
Professions
Job Tags