Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur

Design Transfer Engineer

Langar þig að innleiða nýjar vörur í framleiðslu hjá Össuri?

Össur leitar að metnaðarfullum einstaklingi til starfa sem Design Transfer Engineer. Design Transfer teymið vinnur að því að innleiða vörur úr þróun yfir í framleiðslu og færa vörur milli framleiðslustaða eða birgja. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi og unnin í nánu samstarfi við önnur teymi, svo sem vöruþróun, gæðadeild, innkaupadeild og vörustjóra.

Við leitum að skipulögðum, drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur ástríðu fyrir verkefnum sem bæta lífsgæði og hreyfanleika fólks.

Kostur er áhugi á að vinna með, greina og túlka teikningar (e. technical drawings) og framleiðslutækni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Innleiða vörur úr þróun yfir í framleiðslu 

  • Hanna framleiðsluferli 

  • Styðja við þróun í þróunarferli nýrrar vöru  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • B.Sc í verk-  eða tæknifræði  

  • Brennandi áhugi á framleiðslu og umbótum ferla  

  • Þekking á straumlínustjórnun (e. Lean) er kostur  

  • Hæfni á sviði gagna- og kostnaðargreininga  

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð  

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu  

  • Metnaður og jákvæðni  

  • Mjög góð enskukunnátta  

Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur  

  • Samgöngustyrkur  

  • Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir  

  • Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat 

  • Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf 

  • Árlegur sjálfboðaliðadagur  

  • Starfsþróun
  • Öflugt félagslíf

  • Sveigjanleiki
Advertisement published6. January 2026
Application deadline23. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.LeanPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.TechnologistPathCreated with Sketch.Engineer
Professions
Job Tags