

Verkefnastjóri tækja og búnaðar - Nýr Landspítali
NLSH (Nýr Landspítali ohf.) leitar að verkefnastjóra til að stýra krefjandi verkefnum tengdum öflun tækja og búnaðar fyrir nýjar byggingar Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri.
NLSH (Nýr Landspítali ohf.) er opinbert hlutafélag sem ber ábyrgð á skipulagningu, hönnun og framkvæmd nýrra bygginga fyrir Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri. Félagið ber jafnframt ábyrgð á að skipuleggja og innleiða nauðsynlegar tæknilausnir og búnað, svo sem rannsóknar- og lækningatæki ásamt nauðsynlegum hugbúnaðarlausum fyrir starfsemi sjúkrahúsanna.
Félagið, sem er að fullu í eigu ríkisins, er í samstarfi við fjölmarga hagsmunaaðila m.a. stjórnvöld, Landspítalann, Sjúkrahúsið á Akureyri, Háskóla Íslands og aðra hagaðila. Fjöldi ráðgjafa starfar fyrir og með NLSH. Nánari upplýsingar um NLSH má finna á www.nlsh.is
Helstu verkefni og ábyrgð
-
- Skilgreining á búnaði í samstarfi við notendur og ráðgjafa
- Gerð útboðslýsinga fyrir lækningatæki, rannsóknartæki og almennan búnað
- Þátttaka í innkaupaferli búnaðar, samningsgerð og móttöku tækja og búnaðar
- Þróun og gerð áætlana fyrir tæki og búnað
- Þátttaka í stefnumótun um aðferðafræði við innkaup búnaðarins
- Framvinduáætlanir og uppbrot í innkaupapakka
- Kostnaðaráætlanir og áhættumat búnaðarkaupa
- Samvinna við önnur fagsvið NLSH vegna búnaðarins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í verkfræði, tæknifræði eða sambærilegu sviði
- Reynsla af stjórnun stærri tæknilegra verkefna
- Góð samskiptafærni, sjálfstæði, frumkvæði og metnaður
- Þekking á búnaði rannsóknastofa, lækningatækjum og almennum sjúkrahúsbúnaði er kostur
- Kunnátta í áætlanagerð og stýringu verkefna er kostur
- Grunnþekking á opinberri stjórnsýslu og innkaupum er kostur
- Góð færni í íslensku og ensku er skilyrði
- Þekking á norðurlandamáli er kostur
Icelandic
English










