Advania
Advania
Advania

Business Central hugbúnaðarsérfræðingur

Advania leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingum sem hafa áhuga á forritun og vilja vinna með Microsoft Dynamics Business Central (NAV) og LS Retail.

Hjá okkur færðu að vinna með nýjustu lausnir Microsoft, þar á meðal Copilot, gervigreind og tækni sem er stöðugt að þróast.

Við bjóðum uppá eitt mest spennandi starfsumhverfi á Íslandi, með skemmtilegum hópi fólks sem í dag þjónustar viðskiptavini á Íslandi sem og á Norðurlöndum og í Bretlandi. Við leitum að einstaklingum sem hafa brennandi áhuga á umbreytingum fyrirtækja og vilja taka þátt í að móta nýja vegferð skýja- og viðskiptalausna.

Við lofum á móti frábæru vinnuumhverfi hjá fyrirtæki sem er að vaxa hratt og leggur metnað sinn í að veita framúrskarandi þjónustu.

Ef þú hefur reynslu á þessum sviðum og deilir okkar ástríðu, viljum við endilega heyra frá þér – sama hvar þú býrð eða hvaða kröfur þú gerir til sveigjanlegs vinnuumhverfis. Við tökum tillit til þinna þarfa.

Almennar hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. tölvunar- eða hugbúnaðarverkfræði
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni, þjónustulund og góð hæfni í mannlegum samskiptum

Þekking og reynsla

  • Góð tækniþekking og geta til að setja sig inn í ný kerfi
  • Reynsla af hugbúnaðarþróun í Dynamics NAV/BC mikill kostur
  • Þekking á Microsoft umhverfi: Visual Studio Code, SQL, GIT, .NET og PowerShell er mikill kostur
Advertisement published26. November 2025
Application deadline7. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Faxatorg, 550 Sauðárkrókur
Austursíða 6, 603 Akureyri
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags