Veitur
Veitur
Veitur

Brennur þú fyrir að veita framúrskarandi þjónustu?

Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi til að bætast við öflugt teymi þjónusturáðgjafa Veitna. Viðkomandi mun fá tækifæri til að nýta hæfileika sína til að veita framúrskarandi þjónustu og leysa úr fjölbreyttum verkefnum í síbreytilegu umhverfi. Við leitum að fólki í fullt starf.

Helstu verkefni fela í sér að veita viðskiptavinum Veitna ráðgjöf í gegnum síma, tölvupóst, netspjall og samfélagsmiðla, taka á móti umsóknum og greina þær, auk þess að greina og innleiða umbætur í ferlum Þjónusturáðgjafarinnar sem stuðla að bættri upplifun og ánægju viðskiptavina.

Hjá Þjónusturáðgjöf Veitna leggjum við áherslu á:

  • Viðskiptavinamiðaða hugsun: að setja sig í spor viðskiptavina og sífellt að leita nýrra leiða til að mæta þeirra þörfum.
  • Skjóta og örugga viðbragðsgetu: að bregðast hratt og örugglega við þegar á þarf að halda.
  • Frumkvæði og sveigjanleika: að takast á við krefjandi verkefni með frumkvæði, jákvæðu hugarfari og sveigjanleika.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Jákvætt viðhorf, drifkraftur og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund.
  • Hæfni til að miðla tæknilegum upplýsingum á skiljanlegan hátt.
  • Mjög góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja tækni og kerfi.
  • Reynsla af þjónustustörfum er æskileg.
  • Góð skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun.
  • Stúdentspróf, háskólanám eða sambærilegt sem nýtist í starfi.
Advertisement published8. January 2025
Application deadline17. January 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags