Volvo og Polestar á Íslandi | Brimborg
Volvo og Polestar á Íslandi | Brimborg
Volvo og Polestar á Íslandi | Brimborg

Bifvélavirki fyrir Volvo og Polestar á Íslandi

Brimborg óskar eftir hæfileikaríkum og metnaðarfullum bifvélavirkja til starfa á Volvo og Polestar verkstæði fyrirtækisins við Bíldshöfða 6 í Reykjavík. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem felur í sér bilanagreiningu og viðgerðir á Volvo og Polestar bílum.

Við bjóðum uppá

  • Nýjustu bíltækni og framúrskarandi aðstöðu
  • Starfið er lifandi og spennandi þar sem unnið er við nýjustu bíltækni með háþróuðum tækjabúnaði sem eykur skilvirkni og léttir störfin.
  • Frábæra starfsmannaaðstöðu
  • Glæsilega búningaaðstöðu og öflugt starfsmannafélag sem skipuleggur fjölbreytta viðburði og félagsstarf
  • Fjölskylduvænan vinnustað
  • Sveigjanleiki í vinnu

Metnaðarfulla stjórnun

  • Fyrirmyndarfyrirtæki Creditfino
  • Fyrirmyndarfyrirtæki í starfsnámi Nemastofu 2025
  • Moodup- Vinnustaður í fremstu röð 2024
  • Jafnlaunavottað fyrirtæki
  • Brautryðjandi í styttingu vinnutímans

Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á tækni og nýjungum, sem langar að starfa með sterku liði sérfræðinga þar sem miklir möguleikar eru á símenntun og starfsþróun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bilanagreiningu og viðgerðir á Volvo og Polestar bílum 
  • Þátttaka í þjálfun og símenntun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Réttindi í bifvélavirkjun eða sambærileg reynsla af bílaviðgerðum 
  • Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
  • Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
  • Gilt bílpróf
Fríðindi í starfi

Fjölbreytt fríðindi samkvæmt mannauðsstefnu Brimborgar 

  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Afsláttur af vöru og þjónustu fyrirtækisins
  • Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
Advertisement published13. February 2025
Application deadline25. February 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Bíldshöfði 6, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.MechanicPathCreated with Sketch.Auto repairsPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Industrial mechanicsPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags