Frumherji hf
Frumherji hf
Frumherji hf

Stöðvarstjóri í Reykjanesbæ

Frumherji auglýsir lausa stöðu stöðvarstjóra bifreiðaskoðunar í Reykjanesbæ
Stöðvarstjóri er ábyrgur fyrir rekstri stöðvarinnar.
Við leitum að kraftmiklum og þjónustuliprum einstaklingi í framtíðarstarf. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að leggja sitt af mörkum við að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina. Lögð er rík áhersla á jákvæð samskipti og samvinnu ásamt því að viðkomandi falli vel að góðri liðsheild fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Halda uppi framúrskarandi þjónustustigi
  • Ábyrgð á viðhaldi stöðvar og tækjum hennar
  • Framkvæmd skoðana á ökutækjum
  • Þátttaka í öðrum tilfallandi verkefnum

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Sveinspróf í bifvélavirkjun, bifreiðasmíði eða vélvirkjun er skilyrði.
  • Meirapróf
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund

Frekari upplýsingar um starfið í síma 570 9144 eða [email protected] eða [email protected]

Öllum umsóknum verður svarað og þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

Advertisement published19. February 2025
Application deadline17. March 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Njarðarbraut 7, 260 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Journeyman license
Professions
Job Tags