

Atvinnulífstengill
VIRK leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf atvinnulífstengils á skrifstofu VIRK í Reykjavík. Um er að ræða mjög krefjandi, fjölbreytt en jafnframt gefandi starf og einstakt tækifæri til þátttöku í þróun og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar á vinnumarkaði. Æskilegt er að umsækjandi hafi góða þekkingu á atvinnulífi og fjölbreytta reynslu. Skilyrði er góð íslenskukunnátta.
Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.
- Mynda sambönd við og heimsækja fyrirtæki og stofnanir í þeim tilgangi að finna viðeigandi störf fyrir einstaklinga í starfsendurhæfingu
- Ráðgjöf vegna einstaklinga í þjónustu og aðstoð við atvinnuleit
- Samstarf við þverfagleg teymi og öflun og miðlun upplýsinga
- Framfylgja verkferlum, annast skráningu og skýrslugerð
- Veita fyrirtækjum sem ráða til sín einstaklinga í starfsendurhæfingu stuðning og samþætta þannig starfendurhæfingarferlið við atvinnuþátttöku
- Umbóta- og þróunarstarf
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Hagnýt starfsreynsla og mjög góð þekking á vinnumarkaði
Metnaður, frumkvæði og fagmennska
Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Ástríða fyrir því að starfa úti í samfélaginu og vera á ferðinni
Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
Félagslyndi, frumkvæði og jákvætt viðmót
Þekking á IPS hugmyndafræðinni er kostur
Gott vald á íslensku og ensku ásamt góðri tölvukunnáttu













