Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Uppgötvaðu þitt sanna sjálf með LEGO® SERIOUS PLAY

Fáðu að kynnast hæfileikum þínum og komdu auga á ný tækifæri í gegnum skapandi og skemmtilegan leik.

Fyrir hverja:

Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á persónulegri og faglegri þróun, og einnig forvitnum sem vilja prófa eitthvað nýtt.

Markmið:

Að þátttakendur öðlist djúpan skilning á eigin færni og styrkleikum og hvernig megi nýta þau til fulls í lífi og starfi.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Leikrænar aðferðir sem draga fram þekkingu
  • Hvernig unnið er með LEGO-kubba
  • Sjálfsmynd og styrkleika
  • Hlutverk og samskipti við aðra
  • Tækifæri til vaxtar og breytinga

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja og kunna að draga fram styrkleika sína
  • Geta átt í farsælum samskiptum við aðra
  • Finna fyrir aukinni vellíðan á vinnustaðnum og hafa jákvæð áhrif á aðra
  • Koma auga á tækifæri til að verða öflugri starfskraftur
  • Hafa mótað sér vegvísi til frekari þróunar
Starts
13. Jan 2026
Type
On site
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories