
Iðan fræðslusetur

Listin að gera jólakokteil
Hagnýtt námskeið fyrir alla sem hafa áhuga á kokteilagerð. Áhersla er lögð á bæði fræðilega og verklega kennslu þar sem þátttakendur læra að búa til kokteila frá grunni og setja upp kokteilastöð á skilvirkan hátt. Farið verður yfir þrjá kokteila með jóla ívafi á námskeiðinu. Allir þátttakendur fá í gjöf veglegt kokteilgerðarsett sem þeir taka með sér heim og geta búið til sinn uppáhalds kokteil.
Fyrir hverja:
Fyrir alla sem hafa áhuga á kokteilagerð – jafnt byrjendur sem vilja læra grunnatriðin sem og þá sem hafa einhverja reynslu og vilja skerpa á tækni sinni og framsetningu drykkja.
Markmið:
Að kenna þátttakendum grunnatriði í kokteilagerð, bæði fræðilega og verklega, og byggja upp sjálfstraust til að blanda, hrista og skreyta drykki á faglegan og skapandi hátt
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Grunnatriði í uppbyggingu kokteila (hlutföll, bragðjafnvægi og blöndunartækni)
- Notkun baráhalda og uppsetningu kokteilastöðvar
- Val á hráefnum, ís, glösum og skrauti
- Þrjár jólalegar útfærslur á vinsælum klassískum kokteilum
- Framsetningu, útlit og faglegt viðmót við drykkjagerð
Að loknu námskeiði á nemandi að:
Getað hrist saman kokteila fyrir vini og vandamenn og heillað liðið upp úr skónum, í bústaðnum, matarboðum eða hvaða veislu sem er!
Starts
12. Dec 2025Type
On siteShare
Send message
Share
Copy URL
Categories