
Iðan fræðslusetur

Umbrot bóka frá A-Ö
Á námskeiðinu verður farið yfir allt ferlið við umbrot bóka í Adobe InDesign, allt frá móttöku efnis og skipulagningu verkefnis til prófarkalesturs og undirbúnings fyrir prentun.
Fyrir hvern
Námskeiðið er ætlað grafískum miðlurum, hönnuðum og fagfólki sem vill efla færni sína í umbroti. Þátttakendur þurfa að hafa grunnþekkingu á Adobe InDesign.
Markmið
Að þátttakendur öðlist þekkingu og færni til að skipuleggja og vinna að umbroti bóka frá upphafi til enda, nýta góða möguleika InDesign og nýjungar í forritinu og tryggja fagleg vinnubrögð og skilvirk samskipti við alla sem koma að útgáfunni.
Á námskeiðinu verður fjallað um
- Undirbúning og verkstjórn: Móttöku handrita og myndefnis, skipulag verkefna og samskipti við höfunda, hönnuði, ljósmyndara og prófarkalesara.
- InDesign-stillingar: Gagnlegar stillingar og möguleika sem margir þekkja ekki. Nýjungar sem gott er að nýta.
- Stílsnið: Paragraph, Character, Object, Nested og GREP Styles.
- Umbrotsgrindur: Útreikning og uppbyggingu grinda fyrir bókumbrot.
- Efnisyfirlit: Sjálfvirka gerð og uppfærslu efnisyfirlits.
- Myndvinnslu: Stillingar og undirbúning mynda fyrir umbrot og prentun.
- Prófarkalestur: Nútímalegar aðferðir við yfirferð og leiðréttingar.
- Prentundirbúning: Frágang prentskráa og mismunandi kröfur prentsmiðja hérlendis og erlendis.
- Orðskiptingar: Hvað er best að nota til að spara tíma?
Að loknu námskeiði á nemandi að
- Geta skipulagt og stýrt vinnuferlinu.
- Nýta ítarlegar stillingar og stílsnið í InDesign til að auka skilvirkni og gæði.
- Geta reiknað út umbrotsgrindur og útbúið sjálfvirkt efnisyfirlit.
- Þekkja skilvirkar aðferðir við prófarkalestur og samskipti við samstarfsaðila. Hvað á að gera og hvað á að forðast.
- Geta undirbúið fullbúna bók til prentunar hérlendis og erlendis.
Hefst
23. nóv. 2026Tegund
Staðnám og fjarnámDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur
CAR-O-Liner - Mælingar, líming og hnoðun
Iðan fræðsluseturStaðnám24. nóv.
Burðarvirkismæling
Iðan fræðsluseturStaðnám30. nóv.
Hátíðarpaté úr villibráð
Iðan fræðsluseturStaðnám21. nóv.
Kælitækni – mat og vottun
Iðan fræðsluseturStaðnám24. nóv.
Galdurinn á bak við hina fullkomnu Ramen-skál
Iðan fræðsluseturStaðnám24. nóv.