
Iðan fræðslusetur

Hátíðarpaté úr villibráð
Á þessu hagnýta og verklega námskeiði læra þátttakendur að útbúa hátíðlegt villibráðarpaté frá grunni. Farið verður yfir hráefnisval, vinnuaðferðir og samspil kjöts, fitu og krydds til að ná fram góðu bragði og réttri áferð. Einnig verður sýnikennsla í gerð hlaups til að leggja lokahönd á fallega og klassíska framsetningu paté. Farið verður yfir vinnuaðferðir, hitastig og bragðbætingu ásamt því hvernig æskileg áferð næst. Þátttakendur smakka á afrakstrinum og fá hugmyndir að framsetningu fyrir jólaborðið og önnur hátíðleg tilefni.
Fyrir hverja:
Alla sem hafa áhuga á paté- og kæfugerð, hvort sem þeir eru að stíga sín fyrstu skref eða vilja skerpa á kunnáttu sinni. Hentar vel fyrir matreiðsluáhugafólk, heimakokka, veislubakara og þá sem vilja bæta við sig nýrri og spennandi færni fyrir hátíðir og matarboð.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist þekkingu á grunnatriðum paté- og kæfugerðar og færni til að útbúa bragðgott villibráðarpaté frá grunni. Áhersla er lögð á hráefnisval, kryddun, áferð og fallega framsetningu með blöndu af fræðslu, verklegri vinnu, sýnikennslu og smakki
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Rétt hráefnisval: hvaða partar henta best og hvers vegna
- Hlutföll kjöts, fitu og bragðefna.
- Grunnvinnubrögð við paté- og kæfugerð.
- Kryddun, hitastig og aðferðir til að ná fram góðu bragði og áferð.
- Gerð og notkun hlaups við framsetningu paté, með sýnikennslu.
- Kælingu, geymslu og framsetningu fyrir hátíðir og matarboð.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta útbúið bæði einfaldar og hátíðlegar tegundir af paté frá grunni.
- Geta valið viðeigandi hráefni og sett saman kjöt, fitu og bragðefni í réttum hlutföllum.
- Þekkja helstu atriði sem hafa áhrif á bragð og áferð paté.
- Þekkja aðferð við gerð hlaups og hvernig það er notað við framsetningu.
- Hafa sjálfstraust til að bera fram paté í t.d. matarboðum á viðeigandi og aðlaðandi hátt.
Hefst
21. nóv. 2026Tegund
StaðnámTímalengd
1 skiptiDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar