Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Burðarvirkismæling

Viltu komast á lista Samgöngustofu yfir viðurkennda mælingamenn vegna burðavirkis ökutækja?

Fyrir hverja: 

Námskeiðið er fyrir fólk sem vill komast á lista samgöngustofu yfir mælingamenn sem hafa heimild til útgáfu burðarvirkisvottorða.

Markmið: 

Gera þátttakenda kleift að komast á lista Samgöngustofu þegar kemur að útgáfu burðarvirkisvottorða og miðla til þeirra upplýsingum í tengslum við þau réttindi ásamt því að auka þekkingu þegar kemur að vinnu við burðavirki bifreiða.

Á námskeiðinu verður fjallað um: 

  • Kröfur samgöngustofu til mælingamanna
  • Reglugerðir og ferla tengt útgáfu burðavirkisvottorða
  • Hvað ber að hafa í huga við vinnu við burðarvirki
  • Hvaða búnað þarf að hafa á verkstæði
  • Tækninýjungar tengt burðarvirki bifreiða
  • Leiðbeiningar framleiðenda og mikilvægi þess að fylgja réttum ferlum.

 

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja þær kröfur sem samgöngustofa gerir til mælingamanna
  • Þekkja reglugerðir og ferla tengt útgáfu burðavirkisvottorða
  • Geta aflað sér upplýsinga framleiðenda og unnið samkvæmt viðurkenndum ferlum.
  • Geta sett bíl í bekk og mælt burðarvirki með viðeigandi mælibúnaði.
  • Þekkja helstu tækninýungar tengdar burðarvirkjum bifreiða.

Aðrar upplýsingar: 

Gerðar eru verklegar æfingar, ýmist á námskeiðinu sjálfu eða úti á vinnustað þátttakenda ef þörf er á.

Til þess að fá réttindi verður aðili að hafa sveinspróf í bifvélavirkjun eða bifreiðasmíði. Mælingarmaður verður að sækja um úttekt á starfsstöð að námskeiði loknu í gegnum idan.is og er kosnaður við úttekt innifalinn í námskeiðsverði. Viðurkenning mælingamanns gildir í 5 ár. Frekari upplýsingar má finna á vef Samgöngustofu.

Hefst
30. nóv. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar