Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

CAR-O-Liner - Mælingar, líming og hnoðun

Hægt er að velja um 3 dagsetningar, 24., 25. og 26. nóvember.

(English in link)

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er fyrir starfsmenn réttingarverkstæða, fólk sem sinnir tjónamati tryggingafélaga og aðra sem þurfa að hafa þekkingu á mælingu burðarvirkis ökutækja og samsetningu með lími og hnoðum.

Markmið:

Á námskeiðinu læra þátttakendur að framkvæma nákvæmar yfirbyggingarmælingar með Car-O-Tronic Vision2 X3 mælikerfi á Speed bekk. Jafnframt fá þeir verklega og fræðilega þjálfun í límingu og hnoðun samkvæmt viðurkenndum aðferðum sem notaðar eru við nútímaviðgerðir á yfirbyggingum ökutækja

Á námskeiðinu verður fjallað um:

Fræðilegur hluti

  • Speed bekkur
  • Uppbygging mælikerfa
  • Hugbúnaður mælikerfa
  • Hefðbundnar mælingar
  • HMP mælingar
  • Algildar mælingar (Absolute Measurement)
  • Samanburðarmælingar (Comparative Measurement)
  • Punkt-til-punkts mælingar
  • Skráning og skjölun niðurstaðna
  • Líming og hnoðun

Verklegur hluti

  • Verklegar æfingar samhliða öllum fræðilegum þáttum.
  • Kennari sýnir framkvæmd allra aðgerða.
  • Þátttakendur framkvæma allar helstu aðgerðir undir leiðsögn kennara.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • geta framkvæmt mælingar á ökutæki með Car-O-Tronic Vision2 X3.
  • geta útskýrt mikilvægi réttra mæliaðferða.
  • geta túlkað og metið niðurstöður mælinga.
  • geta valið viðeigandi mæliaðferð eftir verkefni.
  • geta útskýrt hvenær og hvers vegna nota á límingu og hnoðun.
  • geta framkvæmt límingu og hnoðun samkvæmt viðurkenndum verklagsreglum.

Aðrar upplýsingar:

Lengd námskeiðs

  • Heildarlengd: 1 dagur (8 klst.)
  • Car-O-Tronic mælingar: 6 klst.
  • Líming og hnoðun: 2 klst.

Kennsluaðferðir

Kennsla fer fram með fyrirlestrum, sýnikennslu, verklegum æfingum og einstaklingsverkefnum þar sem þátttakendur vinna með raunverulegt mælibúnaðarkerfi. Kennt er á ensku.

Hefst
24. nóv. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar